. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Get ekki..................

Sofið, enda svaf ég í dag, lengur en ég ætlaði.  Var búin að gera heilan helling úti í athvarfi og ákvað að fleygja mér undir teppi smástund ..... og vaknaði eftir tvo tíma.  Svo uppgötvaði Gísli flóð úti í athvarfinu núna eftir kvöldmatinn, tók viðbótarrispu við að taka upp úr kössum meðan ég fygldist með vatnsborðinu sem hækkaði í sífellu í risavöxnu koníaksstaupi sem ég á þarna úti.  Það hafði Gísli sett undir lekann. Ekki voru þó allar hrellingar úti, þegar við fórum í háttinn ..... rigningarvatn úti um allt gólf í svefnherberginu.Lekur semsagt þar inn líka, arg og hóst..........

 Talvan mín er í verkfalli, ég er að pikka þetta á fartölvuna hennar Árnýjar, ég fæ að hafa hana í láni þangað til ég fer suður, það er bara vika í Tenerife.

Skamm Vala, þrifðu nú frekar einhveja fartölvuna sem þið eruð að leggja, en að gera grín að gamalli mömmu, ussususs........... 


Sauðurinn ég.............

Það er kominn mánudagur, hrossastúss hálfnað og ný vika hafin.  Byrjaði hana frekar ógáfulega, týndi bíllyklum mínum, já og húslyklum þá auðvitað líka, þetta er allt á sömu kippunni.  Leitin að lyklunum hafði að vísu það gott í för að ég tók vel og ærlega til eftir gestaganginn um helgina, börnin tíndu að vísu upp ..... það sem sást, en það var bara brot af því sem þeim tókst að dreifa um íbúðina.  En ekki fundust lyklarnir.  Ég leitaði úti í athvarfi .... þegar ég var búin að sækja lykil til Gísla, en nei, ekki þar.  Meir að segja aukalykillinn að bílnum var læstur inní í honum.  Ég ætlaði því labbandi í föndur eftir hádegið og ekki kát, þegar ég skilaði kalli mínum hans lykli..... áður en ég týndi honum líka.  Eitthvað vorkenndi Gísli sinni geðvondu konu og labbaði með mér út í athvarfið ...... og gekk að lyklunum.

Má flengja búálfinn ???????????????? 


Laugardagur.........

Og það sko ekki neinn venjulegur laugardagur, fyrsti dagur vetrar er í dag.  Ég svaf í gamla svefnherberginu mínu í nótt... og svaf vel.  Við mæðgur áttum rólegt og gott kvöld við föndur og gaman í gærkvöldi, fengum okkur bjór og það þýddi gistingu. Nú ólmast Smári Þór og Alexander inni í herbergi og eiga að fara að sofa, ekki að kjafta frá sér allan svefn, Svanhildur að koma inn um dyr til gistingar, öööööö einhver hélt því fram að það hlyti að vera rúmt á okkur tveimur, mér og kallinum........í stórri íbúð.

Morgunpistill letingjans......

Ég nenni ekki neinu í augnablikinu, þarf að koma hinu og þessu á sinn stað, sumt á leið í geymslu, annað á leið í rauðakrossinn, ruslið út í tunnu, eitthvað þarf að komast út í athvarfið mitt (skúrinn)........best að blogga aðeins.  Nú er komin endanleg mynd á sjónvarpsherbergið, Gísli kom heim úr síðustu suðurferð með ósamsettan skáp undir sjónvarpið.  Þau drifu í að setja hann saman strax, í hálfnuðu verki klemmdi Árný sig og hætti þar með en Árni tengdasonur hafði hætt sér í dyrnar og var ekki sleppt út fyrr en skápurinn var kominn heill á sinn stað. Árný var búin að færa tölvuna og allt dót tölvunni fylgjandi virkaði fínt á nýjum stað.  En ADSL tengingin á sjónvarpinu hafði aldrei virkað þrátt fyrir töluverðar tilraunir í þá áttina.  En viti menn, Árni fiktaði þangað til að tengingin datt inn . mikið takk.... fiktari góður.

Við áttum brúðkaupsafmæli í gær, við Gísli, 34 ár síðan við stóðum fyrir framan altarið í Undirfellskirkju og hétum hvort öðru að fylgjast að eftirleiðis.  Og tekst enn.  Vorum reyndar þrjú þarna við altarið. Annan var rétt ófædd, átti reyndar að fæðast þennan dag en beið til 10 nóvember. Já minnst á Önnuna, ertu hætt að blogga eða ertu bara enn að taka upp úr töskunum eftir Bostonferðina.....

Það er sviðamessa í kvöld hjá Lion og þar sem húsbóndinn  ætlar þangað, ætlar kona hans í sveitina með föndurdót og svið í farteskinu, við mæðgur ætlum að gera okkur glaðan dag  saman.


Öfugur dagur..........

Alla vega vaknaði ég í seinna lagi að mér fannst, fann ekki fötin sem ég hafði ætlað í fyrr en eftir leit, og var þarafleiðandi of sein í morgunte í sveitinni.  Þetta slapp nú samt allt og að te/kaffidrykkju lokinni, Guðjón granni birtist nefnilega líka og leist engan veginn á te, svo það var hellt uppá könnuna, þá drifum við mæðgurnar okkur í eggjapökkun.  Sú stóð svo í járnum með tíma að við létum vita að ráðskonan yrði sennilega aðeins of sein með matinn. Svo var það frágangur og svoddan, síðan dreif ég mig heim og bjó mig út til að fara í föndur sem bytheway er ekki fyrr en á morgun.  Uppgötvaði þá staðreynd þegar ég var komin á bílastæðið þar fyrir utan. En fátt er svo með öllu vont að ekki boði nokkuð gott, ég hypjaði mig, fúl nokkuð út í skúr og réðist þar á tiltekt og upptekt, nú eru komnir 7 eða 8 TÓMIR kassar út í bíl og gæti fjölgar, ætla aftur út.  Athvarfið mitt er að taka á sig mynd.............

Má til............

Ég hnaut um þetta á bloggi hjá vestfirskri "norn" sem ég kíki gjarnan á, hún er snilldarpenni og ágætur ljósmyndari líka, má til með að dreifa þesssu meira.....

Jólagjafalistinn hennar ömmu.

 

Elskulega fjölskylda, mér datt í hug fyrir þessi jól að senda ykkur smábréf um jólagjafir. Þar sem plássið er farið að minnka hjá mér, en þið öll svo elskuleg að færa mér gjafir fyrir hver jól.

  Ég biðst undan því að fá fleiri flókainniskó.  Ég á orðið lager sem endist mér út ævina.

  Ég vil líka segja ykkur að ég á nóg bæði af pottaleppum og svuntum.

  Ég á orðið 7 flónelsmorgun sloppa úr Rúmfatalagernum, og þarf ekki fleiri í bili.  Auk þess þykir mér eldrauður litur fallegri en þessi gammeldags pink kerlingarlitur.

  Myndir af börnum og barnabörnum eru allt í lagi, en best er að vera ekkert að setja þær í ramma, ég vil heldur setja þær inn í albúm, þar sem allir veggir eru orðnir þaktir af myndum, svo hvergi er auður blettur.

  Í Guðanna bænum ekki fleiri smástyttur, hvorki gler, keramik eða tré.  Ég þurfti að setja tvo stóra fulla kassa niður í kjallara eftir síðustu jól.  Og ég er orðin svo fótafúin.

  Bækur eru svo sem allt í lagi, en ég á orðið 10 biblíur, les þær reyndar aldrei, og allskonar ævisögur og heilsubækur.  Ef þið viljið gefa mér bækur, þá vil ég frekar Arnald Indriða, eða Agötu Christie.

  Og ég hlusta frekar á Led Zepplin og Nirvana en Hauk Mortens eða Karlakór Reykjavíkur.

  Sem betur fer hef ég losnað við öll fótanuddtækin með því að gefa þau á tombólur, nema þetta eina sem ég nota undir blóm á svölunum.

  Ég verð að segja eins og er, að ég hefði í staðinn fyrir þennan dýrindis lazerboystól sem þið tókuð ykkur saman og splæstuð á mig í fyrra, viljað hljómflutningsgræjur eða tölvu.  Sit afar sjaldan í svona stól, því það er erfitt að standa upp úr honum.  Og ég nota tölvu frekar, og þykir meira gaman að háværri rokktónlist.

  Svo ætla ég að benda ykkur á að þið verðið að koma jólagjöfunum ykkar snemma til mín þetta árið, því ég hef ákveðið að skella mér til Kanarí um jólin, við ætlum nokkur saman gamlingjar og djamma og djúsa.  Vonandi verðið þið stillt og góð.

 Sjáumst á næsta ári amma


Skemmtileg helgi ...........

Að baki og ný vika runnin upp.  Jón bróðir og Lóa, já og auðvitað börnin þeirra komu hér um miðjan dag á laugardag og gistu.  Hér höfðu þau ekki komið áður til okkar og það var ekki laust við að Karenu og Helga þætti skrýtið að við værum ekki lengur í goggusveitinni, eins og þau sögðu stundum á meðan þau voru lítil.  Líklega á þó Karen heiðurinn af þessum titli, því hún kallaði Gísla lengi vel afa gogg á meðan hún átti erfitt með að segja nafnið hans, já og jafnvel lengur.  En þau skruppu nú í sveitina í heimsókn, þar voru fyrir fimm börn um helgina hjá frænku sinni, Svanhildur og Smári Þór + Anna Guðbjörg, svo voru tvíburarnir þeirra Kára og Evu líka í sveitinni.  Eitthvað kíkti Gerða líka með sína syni þannig að bút úr laugardeginum hafa þau verið tíu talsins. Ekki nýtt að margt sé af börnum þar .... og uni vel.

Það fer að styttast í Tenerife ferðina og svo er Vala að skipuleggja stelpu ferð til London í mars ..... og vorkennir mömmu sinni ekkki hætishót að  það eigi að fara tveim vikum áður en að hefst handavinnusýning í Olympia Hall.  Ekki það að mig vanti eitthvað, það er bara svo óstjórnlega gaman að vera þarna á sýningu.

Ég er annars ekki í mínu skásta formi þessa dagana og kemur þar margt til. Haustið hefur aldrei farið vel með skap mitt, mér gemgur illa að halda mig á mottunni með mataræðið, matur er bara svo ægilega góður, meir að segja margra mánaða nammibindindi sprakk.  Þetta varð til þess að nýlega grét ég yfir mynd sem ég var að horfa á af fárveikri anorexíustúlku fyrir fáeinum dögum.  Ekki það að mig langaði til að vera svona horuð, en mér finnst oft almættið skipta kílóum illa á milli fólks.  Ég hefði glöð gefið henni alllt sem hana vantaði upp á þyngdina, öllu verra er að það væri ekki nóg, hana skortir líka annað viðhorf til þess sem hún borðar, það sem hana hrjáir er hugurinn.  Ég er kannski komin út á svell með með þessa þenkingu mína, hún er þó ekki illa meint, guð gefi að hún nái bata.

Nú er það dagurinn í dag, föndur eftir hádegið. hádegisverður í "möppudýrin" mín og svo sagan endalausa í skúrnum, en ...... hún er að styttast.


Letikast..........

Já og Reykjavíkurferð eru orsökin að blogg skorti hjá mér.  Við Kata mágkona fórum snemma morguns á miðvikudaginn af stað til Reykjavíkur til að fylgja henni Stínu frá Bergsstöðum síðasta spölinn.  Það var margt sem flaug um hugann meðan ég sat í kirkju, hún var svo sérstök kona, hreinskiptin svo af bar og trölltrygg. Eftir athöfn buðu Gestur og börnin hennar til kaffidrykkju í safnaðarheimili kirkjunnar, þar hittum við marga sveitunga sem við höfðum jafnvel ekki séð lengi.  Og alls ekki, þarna gaf sig á tal við mig kona sem mundi eftir ömmu minni, blóðmóður pabba.  Hún hafði verið barn í skóla sveitarinnar og verið strítt og hafði þá amma skorist í leikinn.  Þessari ömmu minni sagðist konan aldrei gleyma.  Mér þótti vænt um að hún skyldi gefa mér hlutdeild í minningum sínum um ömmu, örlögin höguðu því svo að ég sá hana aldrei, en mér er sagt að ég sé lík henni um margt.  Tannhvöss og skapmikil en raungóð öllum minnimáttar ..... nú verða aðrir að dæma.

Ég braut upp vanann í morgun og hafði lambalæri með öllu í mat á skrifstofunni, vissi ekki annað en Lena væri að vinna og bæði sonur hennar og eiginmaður kæmu í mat, en ónei, hún var vestur í Staðarskála og kallmennirnir lét hvorki sjá sig né heyra. Þá það, það er bara afgangur í kvöldmatnn.

Ég er ekki búin að frétta hver bóndinn var sem löggan greip, Hafrún mín, en mér datt sá sami í hug og þér....


Einhver í vondum málum, trallallala......

Það er svosem ljótt að hlakka yfir óförum annarra, en þegar ég var að setjast hér við tölvuna, var útvarp norðurlands að segja frá afrekum gærdagsins hjá Blönduósslöggunni, gripu sauðdrukkinn bónda á dráttarvél sinni á leiðinni milli bæja. Jahjarna...... skyldi hann hafa verið að koma frá messu, það var jú sunnudagur/messudagur í gær.

Var alveg geysidugleg um helgina, Árný og Gísli auðvitað líka, við að tæma og henda af háaloftinu í sveitinni, það er ekki mikið eftir þarna upp sem betur fer.  Þá er líka farið að síga á seinnipartinn af flutningum frá Efrimýrum.


Gjafabréfið......

Ónei, ekki var ég nú búin að gleyma þessu skondna bréfi sem ég fékk með hrærivélinni minni góðu, heldur lenti ég í vandræðum með að koma því hér inn, nenni ekki lengur að fikta, pikka það bara upp. 

Lena var nefnilega að minna mig á þetta.......

Elsku mamman okkar.

Innilega til hamingju með daginn og öll þessi ár..

Við erum nokkuð viss um að þetta sé græjan sem þig langði í, EN hinsvegar fylgja henni skilyrði nokkuð ströng.

Þetta langar okkur í......

Rjómaterta, súkkulaðiterta, vöfflur, pönnsur, marengstertu, kornflekstertu, muffins, súkkulaðibitakökur, túkalla, hálfmána, piparkökur, marmaraköku, JC köku, sjónvarpsköku, heimagerðan ís, og síðast en alls ekki síst.... mömmukökur með miklu kremi.

Og þar sem þú varst ekki heima á afmælisdaginn sjálfan máttu velja tvennt af framangreindum lista og bjóða okkur svo í kaffi.

Eigðu góðan dag og til hamingju með að vera árinu nær í ellistyrkinn.

Afmæliskveðjur

Vala, Anna, Lena, Árný, Jökull og fylgifiskar. 

Og auðvitað þinn heittelskaði eiginmaður Gísli.

 


Næsta síða »

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband