. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Búin að finna........

Eiginmanninn ..... nú er hann bara í fótabaði í leifunum af skattaskýrsluhaugnum.  Hafði orð á þegar hann skilaði sér heim snemma í nótt, að hann yrði kominn heim fljótlega eftir að lokað yrði í dag.  Svo er það undirbúningur fyrir vesturferð til pabba og mömmu á Þingeyri um miðjan dag á morgun.  Ætlum að bíða eftir Árnýju, hún ætlar með okkur. 

Fór á stórskemmtilegan fótboltaleik í gærkvöldi, Hvöt fékk Breiðablik í Kópavogi í heimsókn. Þetta telst stórleikur á vellinum hér, en þrátt fyrir töluverðan mun á liðunum að mann hélt, þvældust heimamenn mikið fyrir Blikunum, það var liðið á seinni hálfleik þegar gestunum tókst að skora...... áður en leik lauk voru þeir komnir með annað mark. 

Vala er á kafi við undirbúning smábæjarleika sem standa hér um helgina, hér á Húnabrautinni verður fullt hús gesta sem ekki er nýtt, Jón bróðir verður hér ásamt fleirum um helgina. Smárinn minn kom hér í dyr til ömmu í gær og hlakkar mikið til helgarinnar.

 


Þjóðhátíðardagur ... 17 júní.

Og plönturnar eru komnar niður í mold í girðingunni okkar góðu fram á Núpi, við nutum góðrar hjálpar þeirra Árnýjar, Gerðu og Lenu + Antoni og Elísu og svo stýrði hún Sigrún stórasys verkum og nafna mín var með henni. Stórgóð stund sem endaði í grillmat sem snemmbúnum hádegismat.  Rétt um það bil sem við vorum búin að taka saman áhöld og grill sem utandyra var .... fór að rigna.  Almættinu líkar greinilega vel framkvæmdin og vökvar fyrir okkur allavega í dag.

Fyrir nokkru síðan, sofandi þarna framfrá í bílnum, dreymdi mig ömmu mína og nöfnu.  Hún stóð við eldavélina í gamla eldhúsinu á Núpi og var að verma hendurnar á kaffikönnunni ofanverðri. Það gladdi mig því ósegjanlega þegar Gerða mín bað mig í gærkvöldi að hýsa þarna framfrá kaffikönnuna sem komin var í hennar hendur frá pabba hennar.  Ég vil að kannan fari aftur heim sagði hún.

Enginn skal segja mér annað en amma sé enn að líta eftir mér. Og elsku Gerðan mín... takk fyrir að treysta mér fyrir könnunni.


Helgin búin .......

Og ég komin heim með kallinn og skítugan bíl. Kom aðeins hingað heim í gær en var farin aftur uppeftir um tvöleytið.  Ein..... þangað til að Gísli skilaði sér í kvöldmat,  Lena, Árni og börn komu með afann uppeftir og borðuðu með okkur.  Þeim líst vel á framkvæmdir og hafa hug á að nýta sér aðstöðuna, Árni minntist ekki á holur í vegi og viðkvæman bíl + fellihýsi. Síðan fóru þau og Gísli fór að vökva í skurðina.  Okkur tókst nefnilega um helgina að leggja vatn þarna heim ... að vísu ofanjarðar, ég hafði það af að fara alla leið upp í vatnsból á laugardeginum og skoða en gamla vatnslögnin var þrælstífluð og ekki viðlit að hreinsa út úr henni nema með mikilli fyrirhöfn.... lögðum þetta því upp á nýtt.  Og nú er það stefnan að rennbleyta alla mold í skurðunum áður en  verður gróðursett í þá .

Alla helgina er búið að vera yndislegt veður, Annan mín og börnin voru komin í Núp á föstudagskvöldinu í kvöldmat, sem og Árný, en þau sváfu hér niðurfrá sem börnin voru ekkert alltof sátt við, en voru svo komin snemma nokkuð  á laugardeginum til ömmu í sveitina, afi var auðvitað farinn að sinna skattinum.

Ég er alltaf að finna það betur og betur hve gott það er að vera þarna í kyrrðinni, rifja upp gamla tíma... hver veit nema að þær hugleiðingar rati seinna hér inn......


Gamla sveitin mín....

Er á leiðinni þangað, þreytt og lúin og alveg viss um að þar er hvíld og frið að finna, ætla að blogga eftir helgina ... búin að fá ákúrur  fyrir bloggleti.

Góðan dag........

Löngu vöknuð, búin að fara góðan hring á fésinu, lesa moggann og borða. Vonandi góður dagur framundan, gærdagurinn endaði skemmtilega , fór á skólaslit og þar var Sassan hennar ömmu að ljúka grunnskóla.  Hún kom svo til okkar afa og sýndi okkur einkunnir, sem og Lena gerði líka, hún kom með einkunnir sinna barna og sýndi okkur. Árný eldaði kvöldmat hér uppi meðan amman var á skólaslitum og Gerða kom og borðaði með okkur. Nú hamast hún við að pakka niður fyrir flutninga í Keflavíkina, byrjaði í gærkvöldi.

Gísli er enn á kafi í skattahaugnum, kíkir þó heim í kvöldmat og sefur yfir fréttunum, held samt að haugurinn sé að grynnast svo fari að sjá í kallinn.  Svo er það vesturferð ..... með yngstu dótturina ... hún ætlar að koma með gamla settinu.


Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband