. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2012

Enn er þoka...

Og útlit fyrir réttaveður ekki neitt sérstakt, en það verður nú samt réttað á sunnudaginn, geðvond og fúl hross ef verður bæði blautt og kalt.

Ég fygldi Villa Rabba til grafar í gær, umvafin börnum, barnabörnum og vinum.  Og varð að horfa uppá að föður hans og stjúpu sem og flestum systkinum hans væri meinaður aðgangur að útförinni.  Góður maður sá hinsvegar til þess að þau fengu þó að sjá hann og kveðja fyrir hádegið í gær.

Ég er ekki viss um að hún sofi vel allar nætur sú "ágæta" kona  sem fyrir þessu stóð. Til viðbótar birti hún dánartilkynningu í mogganum í morgun og þar fer hún rangt með, hann lést jú heima hjá móðursystur sinni, en fyrir eigin hendi og skildi eftir bréf sem tók af allan vafa.  Og ekki hafði hún fyrir því heldur að lofa föður hans að koma að auglýsingunni.... hvað þá systkinum hans.

Lái mér hver sem vill þó ég sé öskureið, veit vel hvaða afleiðingar ósannindi í kringum sjálfsvíg geta haft á fjölskyldur.

Fæ sjálfsagt ákúrur fyrir skrifin en mér er sama ......


Hugleiðing dagsins......

Úti er lognið mjög svo að flýta sér og í þokkabót er ausandi rigning.  Afleiðing ...  ég fer ekki niður í íbúð á neðri hæð með þvott, ekki út með ruslið og alls ekki með allt það sem bíður á stigaskörinni eftir næstu gestum að koma þessu út í bílskúr, ja eða Gísli taki eftir þessu og fari með út fyrir mig. Ekki hægt að þvo og hengja út .... argoghóst.

Að öllu þessu slepptu gæti alveg legið betur á mér, í síðustu viku ákvað góður vinur að nú gæti  hann ekki meir og flutti sig á næsta tilverustig.  Eftir stendur fólkið hans, vinir, gamlir vinnufélagar .... og spyrja sig ... hversvegna ... til hvers ... og fá engin svör.

Við erum mörg sem söknum Villa Rabba sárt.

Af okkur hjónum er samr allt hið sæmilegasta að frétta eftir flæking sumars sem er þó hvergi nærri lokið, ja nema Núpurinn verður ekki notaður mikið meira nema til að fara vestur ef veður leyfir. Ég er að fara til London 9 október, Gísli í gönguferð til Tenerife 13 okt oger ekki heima nema í viku ... farinn aftur til Tenerife með kerlu sína, systur og mág og hjónin í Enni.  Það verður fjör á okkur í þrjár vikur þarna úti..... þrátt fyrir aldur og fyrri störf, ættingja og vini ......

Bloggandinn fauk við símtal, geri betur þegar skap mitt skánar og veðrið er ekki að gera mig óða ......


Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband