. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Hélt .....

Virkilega einhver að  Davíð leysti frá pokanum með leyndarmálinu.......
mbl.is Davíð ber fyrir sig bankaleynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úps.........

Þessi dagur byrjaði ekki gæfulega, hjásvæfill minn elskulegur hafði gleymt að stilla vekjarann, ja nema þann sem alla daga hringir á sama tíma fram í eldhúsglugga og ekki er hægt að finna út hvernig slökkva skal á þessum andsk......  en þar sem enginn sefur í eldhúsinu dugar ekki að treysta á eintak þetta til vöknunar.  Læt duga að upplýsa hér að þetta eru ekki bestu dagar Gísla þegar hann sefur yfir sig.  Hann gleypti jú í sig morgunfóður eitthvað en mogginn er ólesinn þrátt fyrir að fara upp í miðjan stiga, hvernig svo sem það er hægt, Hrefna kemst örugglega ekki öll í gegn um bréfalúguna.... enda myndi hún þá færa okkur blaðið í rúmið.  Ég millilenti aðeins við saumavélina við að álpast til að setja í þvottavél, þar fann Vala mig þegar hún kom við í morgunkaffi.  Hún var nýfarin út .... þá birtist á tröppunni Þorgrímur smiður.... nú mundi hann allt í einu eftir að það var eftir að gera við rakaskemmdir í bílskúrnum öðrum, þetta sem átti að gera um leið og skipt var um gler þar í sumar.  Ég niður í skúr, með eiginmanninn í kjölfarinu til að gera vinnufært fyrir smiðina.  Núna lítur skúrinn minn út eins og hent hefði verið þar inn handsprengju, ástandið var nú ekki gott fyrir en versnaði til muna.  Það verður verkefni ársins 2009 að gera ratljóst þarna um dótið mitt.

Hvíld þar til að þarf að fóðra í hádeginu..... 


« Fyrri síða

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband