. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Föstudagsmorgunn......

Og fyrstu fréttir dagsins voru að eldsvoði hafði orðið um borð í skipi sem Kristján bróðir er á og núna er statt í Hafnarfirði við bryggju þar.  Sem betur fer sluppu þessir þrír menn frá borði óslasaðir.   Annars horfir dagur nokkuð vel, ég er hálfnuð við að þrífa planið hér fyrir utan húsið og men hvað það er hræðilega mikill skítur þar eftir veturinn.  Það er enn smásnjóleifar í garðinum en um helgina ætti ég að geta þrifið beð og tínt upp óþverrann sem fýkur í runnana og situr þar fastur..  Mér er alveg óskiljanlegt hvað er ríkt í fólki að henda frá sér umbúðum utan af mat, bjórdósum, flöskum þar sem það er statt utan dyra í það og það skiptið... að ég tali nú ekki um andsk.... sígarettustubbana og flugeldaruslið sem er um allan bæ.  Fallega stéttin fyrir utan nýuppgerða Saumkaupsverslun staðarins skartar sígarettustubbum í þúsundatali í rifum á milli steinanna sem hún er gerð úr.  Í fyrra sumar tíndi ég upp stubba og dósir í kring um húsið hér við hliðina sem hýsir hárgreiðslustofu, Búnaðarsamband A-Hún, Vís umboðið, Sjálfstæðishúsið að ógleymdu Húnabókhaldi.  Þetta gerði ég reglulega með aðstoð barnabarnanna minna en það var með ólíkindum hvað var fljótt að hætta að sjást að eitthvað hefði verið gert þarna til þrifa.  Arg og hóst......

P.S ég gleymdi að útskýra fyrir þér Gerða mín hvað væri að ske á laugardaginn, það er sýning uppi í Hnitbjörgum sem ég ætla að " frumsýna " eldhúsgardínurnar mínar útsaumuðu..... fyrst að búálfarnir voru svo elskulegir að skila þeim í tæka tíð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefur þú spáð í Halla hvernig lítur út heima hjá þeim sem sem henda ruslinu sínu frá sér þar sem þeir eru staddir utan dyra, manstu eftirauglýsingu sem var í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum um fjölskyldu sem bekk fremur ósnyrtilega um. 

Gangi þér vel með tiltektina kveðja Anna Lilja

Anna Lilja (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 12:20

2 Smámynd: .

Jamm ég man eftir þessu  og stundum hvarflar að mér að sumir eigi ekki tunnu undir ruslið sitt ...... allavega þegar pitsukassar og notaðar bleyjur ásamt ýmsu öðru skreytir tröppur og garð ..... hvað á mann að halda.

., 18.4.2008 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband