. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Mánudagur ... sá fyrsti í föstunni......

Ekki er það nú samt svo gott að maður fasti þessa dagana, reyni samt að halda í eigin hemil með át ósiðina.  Það þýðir að jólabakstur verður í algjöru lágmarki og helst til að eiga eitthvað handa svöngum gestum á jólaföstunni.  Svo verður hjásvæfill Árnýjar hér fyrir norðan um jólin og ég veit að honum þykja kökur góðar. 

Mér varð hugsað til búrsins heima á Núpi í gær ... stödd framfrá.  Áður en jólafastan hófst voru þær byrjaðar að baka, mamma og Beta ...... 12 til 14 tegundir af smákökum, brúna og hvíta rúllutertu, fjögurra laga brúntertu og vínartertu, kramarhús og terturbotna.  Já og rasptertuna, ekki má gleyma henni.  Þetta hvarf ofan í hin misjöfnustu box og þess gætt vel að sama boxið hýsti hverja tegund og í því hafði verið árið þar á undan.  Vaninn er sterkur, jafnvel þó sé bara um kökubox að ræða.  Svo var að sjálfsögðu harðbannað að stelast í baukana fram til jóla og ekki vel séð að væri verið að smakka svona beint af plötunni, ja nema eitthvað væri að laginu á kökunni eða ofninn hafði dekkt plötuna óhæfilega...... sem gerðist alltof sjaldan. Svo var þetta allt tekið upp á aðfangadagskvöld, þegar komið var inn úr fjósi var búið til heitt súkkulaði, þeyttur rjómi, sett á tertu og sett eins mikið af smákökum  og randalínum á borðið þar til ekki komst meira.  Sparistellið sótt upp í efstu hilluna í eldhússkápnum og .... nammi namm. 

Er næstum farin að slefa við að rifja þetta upp........                                       


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að ég muni varla eftir nokkru eldhúsborði svigna eins undan jólakræsingum og á Núpi hér í gamladaga þín og Beta báru stanslaust inn á borð  meðan þær hrærðu í súkkulaðinu og mikið lifandis skelfing var þetta allt gott....falleg og góð minning

Hrönn Árnad (IP-tala skráð) 13.12.2010 kl. 03:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband