. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Looooksins.......

Fáeinar leiðbeiningar til ferðafélaganna átta og gestgjafa í Keflavík.

Ég hef séð á bloggi ykkar flestra undanfarna daga að  nauðsynjahlutir eru komnir á sinn stað... ferðatösku eða veskið, bannað að gleyma svo hvorutveggja heima í æsingnum við að komast af stað.  Muna eftir að vera í góðum skóm.... og þá er ég ekki að meina einhverja andsk... með háum hælum.  Svo þurfa þær sem eiga eftir að fara í framköllun hjá Bibbu að koma við hjá henni í Hafnarfirðinum, það er ekki hægt að gera svona hluti í gegn um gsm .... ennþá.

Svo er það Bergvegur 10 í Keflavíkinni.  Jökull minn, við gætum verið svangar norðankonur við komu til þín, muna að eiga nú eitthvað gott í ísskápnum handa þinni góðu móður og systrum, já og frænkum.... til að auðvelda þér flókna hluti teljast Gunna og Anna Kristín frænkur þínar í dag og næstu daga, jafnvel lengur ef við göngum ekki fram af þeim í ferðinni.  Eftirréttur má vera í fljótandi formi .... kaffi með íblöndunarefni sem inniheldur rjóma og vínanda .... þær nota sumar mjólk út í kaffið og þá er vara af þessu tagi handhæg og góð í kvöld.

Svo er það morguninn.  Vakna snemma, ekki seinna en sex og morgunverk á baði verða að ganga vel, við erum níu og baðherbergi bara eitt.  Því skulum við draga um röðina í kvöld um not á snyrtingunni og til að flýta fyrir er aðeins leyfilegt að nota einrúmið til að losa sig við fast og fljótandi í salernið, þvo sér um hendur og bursta tennur.  Það er spegill fyrir framan dyrnar sem hægt er að nota til að ljúka snyrtingu og sparsli, já og greiða sér, svo maður hræði nú ekki fugla himinsins og aðra farþega í Leifsstöð þegar þangað er komið.  Jökull minn, þú verður síðastur í röðinni á snyrtinguna, ég fann bara níu spil.

Best að skutla töskunni út í bíl svo ég gleymi henni ekki..... já og p.s..... góðu konur munið eftir að klæða ykkur í fyrramálið, náttföt myndu vekja ótilhlýðilega athygli í innritun og flugstöð........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gerða Kristjáns

Hahaha þetta er besti tjékklistinn sem ég hef séð hingað til

Hlakka til að hitta ykkur síðar í dag, hér er allt að verða klárt.......ætla að taka "Árný" á þetta með restina......klára allt á ca 15 mín

Fara með svínið í bankann og ganga frá smotteríi........svo er maður lagður af stað í borg óttans

LONDON HERE WE COME !!!!!!!!!!  (er einhver búinn að vara Bretana við okkur ? )

Gerða Kristjáns, 11.3.2008 kl. 08:27

2 identicon

Það verður spennandi að fylgjast með ykkur! Góða ferð! Flottur listinn hjá þér!

Gylfi Guðmundsson (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 08:33

3 Smámynd: Anna Gísladóttir

Þú ert bara ágæt mamma mín
En veistu ég er eiginlega farin að vorkenna Jökli greyinu .......

Anna Gísladóttir, 11.3.2008 kl. 08:34

4 Smámynd: Ragnheiður

hahahahaha segi það, besti tékklisti sem ég hef séð en mér tókst að sárvorkenna Jökli öftustum í 9 manna pissuröð en á móti kemur að hann getur þotið út í garð í skjóli myrkurs.

Góða ferð mín kæra

Ragnheiður , 11.3.2008 kl. 08:34

5 Smámynd: .

Einmitt, hrossið mitt góða, hann getur skotist út, það getum við konurnar ekki.  Gerða mín auðvitað er búið að vara þá við...... búið að vera vitlaust veður hjá þeim í meir en sólahring.....

., 11.3.2008 kl. 08:53

6 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Þið vitið að konur með viðkvæman maga þurfa að hafa forgang á snyrtinguna

Og ég að næstum því allar okkar eigum það bara alveg inni hjá Jökli Snæ að mæta í heimsókn til hans og byrja á því að rannsaka innihald ísskápsins....

5 klst í brottför...

Rannveig Lena Gísladóttir, 11.3.2008 kl. 10:24

7 identicon

Nei nú eru bara 4 klst. í brottför!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ennþá rok og rigning í london en hef fengið loforð að handan, utan eða bara einhverstaðar frá að það lægi um leið og við mætum!muhahaha..draugfullar vegna tafa á Leifstöð..... úps!

Anna Kr. (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 11:03

8 Smámynd: Anna Gísladóttir

Ja þið hinar verðið kannski draugfullar en ekki ég   Það verður einhver að vera til frásagnar um þessa ferð og hef ég þess vegna tekið þá ábyrgðarfullu ullu ullu  ákvörðun að vera edrú ! 

Anna Gísladóttir, 11.3.2008 kl. 11:07

9 identicon

LONDON

Vala (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 12:44

10 identicon

hahaha ...

Góða ferð :)

Kveðja Inda

Inda (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband