. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Aldrei skyldi ég segja aldrei......

Er búin að hafa um það nokkur hógvær orð að inn á Facebook hafi ég ekkert að gera.  Þetta er tímaþjófur( ég er mjöög upptekin kona) ég nenni ekki að læra á þetta og til hvers sossum?  Í tölvupóstinum mínum var hinsvegar beiðni frá hrossinu mínu góða um að opna slóð inn á síðuna hennar á fésbókinni, nei skrá mig svo ég gæti farið inn á hennar síðu á téðri bók. Ég skráði mig eftir öllum reglum sem þar að lutu og reyndi svo ...... halla@efrimyrar.is  og password ............ en nei takk errormelding á netfangið mitt.

ERGO, ég er ekki hæf á Facebook, því miður.

Sneri mér bara aftur að saumaskapnum, svo kíktu Majan mín og Guðjón Freyr til mín, han lék sér  hinn ánægðasti að Klóa ketti inni í saumaherbergi hjá okkur mömmu sinni meðan við rótuðum eftir litum sem hana vantaði í gjöf sem hún ætlar að búa til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Magnúsdóttir

Við höfum ekkert í fésbók að gera Frú H við erum svo uppteknar við saumaskap og fleira en netfanginu mínu var líka hafnað ERROR.. (díses hvað er þetta með okkur við sem erum svo VIP)

Kristín Magnúsdóttir, 14.1.2009 kl. 09:29

2 Smámynd: Ragnheiður

Úpps..var ég að setja þig í vanda Halla mín ?

Það var nú ekki ætlunin en þetta fór eitthvað um víðan völl þegar ég ákvað að nota vinaleitina á dæmið.

Ég sjálf kann ekki betur á þetta en svo hehe

Ragnheiður , 14.1.2009 kl. 12:07

3 identicon

Ónei hrossið mitt góða, þú settir mig ekki í neinn vanda....

Halla (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 12:52

4 Smámynd: Árný Sesselja

Mamman mín... þú átt svo klára dóttur að nú er ég búin að laga þína téðu Fésbók.... :o)))

Árný Sesselja, 14.1.2009 kl. 22:36

5 identicon

Æ, við ættum nú að hafa tíma til að hittast stöku sinnum

Sigrún (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 21:26

6 Smámynd: .

ójá, ég er ekki flutt ennþá..... af Húnabrautinni meina ég. Við búum tímann bara til ef hann er ekki fyrir hendi hjá okkur

., 18.1.2009 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband