. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Borg syndanna..... einu sinni enn......

Enn og aftur, stóra systa, er ég komin suður fyrir heiði en í þetta skiptið sem fylgifiskur bróður þíns..... ég ligg í leti..... sauma út ...sef ..... fer í heimsóknir ... meðan hann vinnur eða situr á fundi.

Við fórum suður eldsnemma í morgun í yndislegu veðri og Gísli beint í vinnuna.  ég hinsvegar fygldi minni dagskrá dyggilega, endaði upp í Fellahvarfi hjá Ellu Boggu og Sævari, hann átti afmæli í dag.  Ég skemmti mér prýðisvel við að fylgjast með afmælisbarninu opna gjafir frá konu sinni og börnum, margbað hann að lesa fyrir mig leiðbeiningar sem fygldu gjöf frá Ellu ....... á finnsku eða frönsku, hann mátti velja.  Þetta tókst ekki hjá mér, enda hélt skemmtunin áfram þegar hann opnaði svo gjafir frá börnum sínum, þau voru ansi hugkvæm í gjafavali. Nú sér hann fram á að þurfa að hreyfa sig reglulega.... utandyra.

Ég ætla í morgunverð með Gísla upp úr sjö í fyrramálið .... fara svo aftur að sofa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Njóttu vel, systir góð.

Sigrún (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband