. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Ræðan sem ekki var flutt ......

Fyrir nokkru síðan fékk ég bréf í pósti sem innihélt boð í fertugsafmæli norður í Eyjafirði.  Bréfið var nokkuð skondið og alveg í anda konunnar sem var að bjóða okkur hjónum í fertugsafmælið sitt.  Til dæmis manni til upprifjunar var yfirskriftin ... fertug-fjörug-frumleg-frísk-frábær- fönguleg og neðst á blaðinu var... forvitin-fagnandi-frjó-foreldri-fullorðin frjálsleg. Eins og ég myndi gleyma einhverju af þessu?

Ég ætlaði sko að þiggja þetta boð en komst svo að því að sonurinn ætlaði að halda upp á sitt afmæli hinumegin á landinu þá varð ég að velja og valdi soninn.

En ég var byrjuð á ræðustúf handa Guðrúnu Ösp og er að hugsa um að setja línurnar hér inn.

Elsku Guðrún Ösp.

   Fertug, fínleg, frumleg, frökk

   frjósöm, fjörug, fyndin, 

  kátleg, kyndug, kröftug, klökk ?

  kannski er svona myndin.

Þetta  skrifaði ég á blað sama dag og ég fékk boðið þitt í hendurnar.   Ég á margar myndir af þér í huganum frá því þú varst pínulítil.  Og endalaust þakklát fyrir hve oft þú dvaldir hjá okkur Gísla sem barn og unglingur. Uppátækin þín voru ærin ... enn er geymt bréf sem þú skrifaðir Gísla þegar þú þorðir ekki að segja honum beint að þú hefðir brotið slatta af eggjum við að bera þau heim. Í umslagi og skrifað utan á það rétt og riktuglega, en í stað frímerkis hafði hún teiknað hanahaus.  Einhverntíman komstu um páska og að sjálfsögðu með spariföt, þar með talið sparifatavesti föður þíns, sem að sjálfsögðu fannst ekki í Tungusíðunni þegar eigandi vestisins ætlaði að klæðast því þessa sömu páska.  Kannski voru þetta líka páskarnir sem þú grófst páskaeggið hennar Völu niður á botn í hveitiíláti Efrimýraheimilisins ... sem vel að merkja tók fimmtíu kíló hveitis en var til allrar lukku ekki fullt þá dagana.  Ég hef vægan grun um að þrátt fyrir að vera orðin eiginkona og þriggja barna mamma, eigir þú enn til prakkaraskap og hafir gaman af að hræra aðeins upp í tilverunni í kring um þig.  Takk fyrir allt gamalt og gott og guð gefi þér alla daga góða, hér eftir sem hingað til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Ösp

Takk Halla mín og mikið saknaði ég ykkar Gísla í veislunni..  þið hefðuð verið svo fín með kúrekahatta og ég sé Gísla í forustu í línudansinum :)  já það voru ekki leiðinlegar stundirnar á Mýrum og mikið man ég eftir brotnum eggjum sem þú ert svona hógvær með.. því þetta var allt varp dagsins sem ég rak rassinn í og hrundi niður í hlöðuna.  til hamingju með Jökulinn og knús til ykkar allra :)

Guðrún Ösp, 19.10.2009 kl. 07:53

2 identicon

Já Halla mín þið Gísli hefðuð  sómt ykkur vel þarna á "kúrekahátíðinni" þetta var líflegasta afmæli sem ég hef farið í.  Og gestabókin ! þvílík snilldar-hugdetta og það sem dóttur minni dettur í hug :) heibaggar, hjólbörur, hnakkar, skeifur, pókerspil og gamlar olíuluktir. Þetta var bara snilld:) kv. gamla

ebj (IP-tala skráð) 19.10.2009 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband