. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

6 mars 1908......

Þann dag fæddist lítill veikburða drengur í afskekktri sveit norður í landi, 7 barn móður sinnar og ekkert þeirra var á lífi þegar þarna var komið sögu.  Um var kennt að þau hefðu ekki þolað brjóstamjólk móður sinnar og því fékk nýfæddur snáðinn eingöngu mjólk úr nýkastaðri hryssu sem var til á bænum.  Í dag veit ég að ástæðan hefur trúlega verið blóðflokkaerfiðleikar.   En allt um það, hann lifði og það var fyrir mestu.  Foreldrar hans áttu eftir að taka í fóstur föður minn nýfæddan og því varð  Þorvaldur föðurbróðir minn í mínum huga þótt ekki værum við blóðskyld.  Og reyndist mér frábærlega sem slíkur.   Foreldrar hans voru orðin háöldruð þegar ég fæðist þannig að eitt af auðæfum bernsku minnar var að á heimilinu var þessi öðlingur, ásamt Betu sem var uppeldissystir hans... og pabba.   Það var ómetanlegt að alast upp við öryggi þess að vita af foreldrum, frænda, frænku, afa og ömmu, þetta var stór og traustur rammi.  Afi dó þegar ég var sjö ára en amma tveim árum seinna.  Nú eru þau ein eftir á lífi foreldrar mínir.... ég á þessum uppalendum mínum margt að þakka...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Systir góð, ég vildi hafa bara brot af hlýju þinni og orðgnótt. Les bloggið þitt með ánægju- oftast- og óska þess, að ég væri jafn pennafær. Kærleikskveðja.

Sigrún (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 23:11

2 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Hugljúf frásögn hjá þér þó sorglegt sé að heyra af þessum barnamissi. Hef oft velt því fyrir mér hvort konur hafi verið harðgerðari hér á árum áður (í gamla daga) en við erum í dag. Ekki væri mikið eftir af mínu sálartetri ef ég hefði misst 6 börn.

Góða helgi til þín

Linda Lea Bogadóttir, 7.3.2008 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband