29.11.2010 | 09:38
Mánudagur ... sá fyrsti í föstunni......
Ekki er það nú samt svo gott að maður fasti þessa dagana, reyni samt að halda í eigin hemil með át ósiðina. Það þýðir að jólabakstur verður í algjöru lágmarki og helst til að eiga eitthvað handa svöngum gestum á jólaföstunni. Svo verður hjásvæfill Árnýjar hér fyrir norðan um jólin og ég veit að honum þykja kökur góðar.
Mér varð hugsað til búrsins heima á Núpi í gær ... stödd framfrá. Áður en jólafastan hófst voru þær byrjaðar að baka, mamma og Beta ...... 12 til 14 tegundir af smákökum, brúna og hvíta rúllutertu, fjögurra laga brúntertu og vínartertu, kramarhús og terturbotna. Já og rasptertuna, ekki má gleyma henni. Þetta hvarf ofan í hin misjöfnustu box og þess gætt vel að sama boxið hýsti hverja tegund og í því hafði verið árið þar á undan. Vaninn er sterkur, jafnvel þó sé bara um kökubox að ræða. Svo var að sjálfsögðu harðbannað að stelast í baukana fram til jóla og ekki vel séð að væri verið að smakka svona beint af plötunni, ja nema eitthvað væri að laginu á kökunni eða ofninn hafði dekkt plötuna óhæfilega...... sem gerðist alltof sjaldan. Svo var þetta allt tekið upp á aðfangadagskvöld, þegar komið var inn úr fjósi var búið til heitt súkkulaði, þeyttur rjómi, sett á tertu og sett eins mikið af smákökum og randalínum á borðið þar til ekki komst meira. Sparistellið sótt upp í efstu hilluna í eldhússkápnum og .... nammi namm.
Er næstum farin að slefa við að rifja þetta upp........
Bloggvinir
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- Árný Sesselja
- Svanhildur Guðmundsdóttir
- Solla
- Gerða Kristjáns
- Guðrún Ösp
- Fjóla Æ.
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Fanný
- Linda Lea Bogadóttir
- Brynja skordal
- saumakarfan
- Mamma
- Kolbrún Jónsdóttir
- Gylfi Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
- Anna Margret Valgeirsdóttir
- Signý Björg Valgarðsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- aloevera
- Kristín Bjarnadóttir
- Kristján Atli Sævarsson
- Ragnheiður
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
Ég held að ég muni varla eftir nokkru eldhúsborði svigna eins undan jólakræsingum og á Núpi hér í gamladaga þín og Beta báru stanslaust inn á borð meðan þær hrærðu í súkkulaðinu og mikið lifandis skelfing var þetta allt gott....falleg og góð minning
Hrönn Árnad (IP-tala skráð) 13.12.2010 kl. 03:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.