. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Vestmannaeyjar ..... á morgun.

Ég er á leiðinni til Eyja í ferminguna hennar Lindu Kristínar, millilendi á Bakkastöðunum þangað til í fyrramálið að Gerða sækir mig og við leggjum í'ann til Eyja.  Ætlaði að vera voða dugleg og blogga í gær, en dagurinn fór í allt annað... ferð á Sauðárkrók með Anton Einar eftir hádegið og svo fórum við Gísli norður í Miðgarð á tónleika í gærkvöldi.  Karlakórinn Heimir var að flytja í síðasta sinn dagskrána sem sett var saman um Stefán Íslandi.  Alveg stórgott hjá þeim.  Gestasöngvarar voru Þorgeir J. Andrésson og Óskar Pétursson.  Óskari gekk illa, venju samkvæmt, að sitja á stráksskap sínum, þeir enduðu á því að syngja báðir O sole mio, reynandi að hækka sig yfir hinn ... og í miðju lagi eftir væna þrumu úr munni Þorgeirs rétt við eyra Óskars ...... beygði hann sig og hellti úr eyranu með tilþrifum. Hélt svo áfram að syngja.

Það er búið að gjörbreyta Miðgarði, byggja við nýja forstofu, setja lyftu utan á húsið og endurbæta allt að innan.  Nýir gluggar sem ekkert mál er lengur að myrkva, nýir stólar, nýtt á gólfum ... þetta er snilld.  Legg til að Húnvetningar taki nú granna sína til fyrirmyndar og endurbyggi félagsheimilið á Blönduósi, ekki veitir af.


Mín margfræga þolinmæði.......

Er á þrotum, það er búið að taka mig rúmar tvær mínútur að komast inn á bloggið mitt í tölvunni, líklega hefur Kristján Atli haft rétt fyrir sér um páskana að þessi tölva hennar ömmu mætti muna fífil sinn fegri.  Er búin að slást við af og til í morgun að reyna að lesa netkelluspjallið, nokkur blogg .... og komast inn á facebook... ég gat gleymt því nema að endurræsa hróið, fara beint inn á fésið ... og bíða svo í svona tæpa mínútu eftir því að kæmi ákvörðun um hvort mér yrði yfirhöfuð hleypt þarna inn.  Enda er þolinmæðispottinn minn orðinn mjög stuttur.

Hér er bara gluggaveður, það hætti þó að koma hvítt úr lofti þegar leið á morgun, vafamál hvort ég hætti mér nokkuð út í dag.

Halla Katrín er þriggja ára í dag, til hamingju með afmælið þitt, litla nafna.


Vetur er á förum....

Og síðasti vetrardagur er bæði blautur og grár. Og ekki er það til að létta manni skapið að fylgjast með  stjórnmálaumræðunni í sjónvarpinu, þvílíkur hrokagikkur sem Guðlaugur Þór er.  Og þessu á maður að treysta til að endurreisa Ísland úr öskunni..... ja hérna.

Er annars frekar andlaus og þreytt.... og bæði kvíði sumri.... og hlakka til.

Gleðilegt sumar.


Ég get svo svarið það......

Held að talvan mín hafi tekið athugasemdir páskagesta minna nærri sér, hún hefur fátt gert með góðu undanfarna daga.  Ekki tekið inn póst, hleypt mér inn á moggavefinn eða fésið nema mjööög takmarkað, yfirhöfuð verið mjög andsnúin.  Meir að segja verið með ótugtarhátt við Gísla minn blásaklausan.  En eftir hádegið í dag birtist Gísli yngri og hreinsaði út óværu sem var að pirra tölvugreyið.  Reyndi meir að segja að kenna ömmu hvernig hún gæti gert þetta sjálf.

Hinsvegar er eftir að koma í ljós hvort kennslan tókst......

Framanskrifað er gert nánast um leið og Göslinn minn var búinn að koma vitinu fyrir tölvugarminn.  Í ljósi þess að morguninn hafði verið erfiður hjá mér, Guðjón litli var hér hjá mér milli ellefu og tólf en aldrei þessu vant var hann óvær og endaði með því að gráta sig í óværan svefn í fanginu á mér .... amman er þessu ekki vön og lá við að ég væri farin að skæla með honum.  Ég ákvað því að splæsa á mig smá lúr um miðjan daginn.  Sá varð stuttur, Majan mín hringdi og bauð mér og kalli mínum í kvöldmat, ég man að hafa talað eitthvað meira við hana .... hvað það var kemur í ljós við kvöldmatarborðið, en síðan ætlaði ég að teygja aaaaðeins úr mér áður en ég risi upp .... og sofnaði þar með aftur.  Næst hrökk ég upp með andfælum við brothljóð og læti, áttaði mig á að það væri niðri hjá Árnýju, þegar úrill mamma kom í dyrnar þar stóð yfir flutningur á húsgögnum og þrif... hávaðann orsakaði Göslinn þegar hann braut gamalt skrifborðið frænku sinnar í frumeindir í stað þess að skrúfa það í sundur áður en því væri fleygt út á hlað.

Allar tilraunir til rólegheita hér uppi eru því geymdar til morguns, komin hér upp áðan eftir viðkomu á neðri hæð ætlaði ég að fá mér kaffisopa og flatbrauð og kveikti á síðdegisútvarpinu, þar var Ástþór Magnússon að tjá sig og hafði hátt.......

Guð hjálpi okkur Íslendingum ef þetta er það sem koma skal á alþingi, slæmt var það fyrir.......


Páskar næstum búnir......

Og ungarnir mínir sem komu heim til mömmu og pabba um páska eru komnir aftur heilir til síns heima, var ég að frétta áðan.  Hér er búið að vera mikið fjör um páskana hjá okkur, og margt gullkornið flogið.  Kristján Atli vildi endilega að ég færi að spara fyrir nýrri tölvu, honum finnst þessi óþarflega hægfara, en það komu á hann miklar vöflur þegar ég sagði að mér finndist hún bara fín, en hann mætti spara og gefa mér nýja ef honum líkaði ekki við þessa þegar hann gistir hjá afa og ömmu.  Það varð líka stundum árekstrasamt í biðröðinni hjá þeim bræðrum að komast að í tölvuskriflinu, hún var þegar allt kom til alls, skárri en engin talva.  Veður var kalt og hvasst alla dagana þannig að það var lítið hægt að vera úti.

Núna er það pása til kvölds og svo á tónleika upp í kirkju...


Ég var að skila mér heim.....

Nú fær stórasys flog, hún segir að ég tolli aldrei heima, en nú yfirgaf ég gesti og heimili mitt og fygldi eiginmanni mínum eins og þögulli og hlýðinni eiginkonu ber að gera .... þessu trúir enginn sem þekkir mig... er ég viss um.  Hann var minntur á níræðisafmæli og ákvað að fara ..... og ég með honum.  Gestirnir urðu bara að ganga sjálfala á meðan. 

Ég afreka því ekki mikið í kvöld, svona í ljósi skyssunnar sem ég gerði áðan.  Var búin að hita mér kakóbolla á meðan ég gekk frá varningi úr búð og undirbjó páskadagsmáltíð morgundagsins.  Næsti áfangi var talvan .... öööö ... ganga frá þessu og hinu af borðinu, komin fram að tölvunni var ég með sápulögsbrúsann frá vaskinum í hægri hendinni... ekki kakaóbollann minn.  Sem betur fer hafði ég þó ekki skellt honum inn í vaskaskápinn þar sem fja...... sápan á að vera.

Ég er farin að drekka kakóið mitt og horfa á Hljóma myndina.....


Enn rignir ... oj bara.....

Ég nenni ekki að þola lengur þessa ófétans bleytu sem hellist yfirmann óumbeðið, ég á þvott í aukaskolun úti á snúru.   Dreif mig á fætur .... aðeins til að uppgötva þessi leiðindi utandyra.  Þá er að finna sér eitthvað annað til að gera, ætlunin var að drífa sig út.  Búa um rúmið, fá sér kaffi, athuga með ástand sparifatnaðar hjónanna, þrjár fermingar í fjölskyldunni sama daginn, ég ræð því víst ekki ein að fara bara í eina.

Svei mér þá ef er ekki freistandi að hátta bara aftur, í stað þess að búa um rúmið.....


Blautur sunnudagur..........

Ég þurfti ekki annað en að hugsa um að hengja út þvott ... komin rigning. Þá það, jákvæðu áhrifin af henni er að mann losnar við snjóinn sem síðasta hríðarskot færði manni ... óumbeðið. Við ætluðum okkur rólegt kvöld í gærkvöldi  yfir seint elduðum kvöldmat og rauðvíni, þetta varð rólegheitakvöld með  tveim ömmubörnum og yngstu dóttlunni sem endaði með að annað barnið gisti.  Og morguninn góður, það er fátt yndislegra en finna litla arma vefjast um háls manns að morgni ... má ég kúra amma?

Það er að koma vor ......

Bara verður, takk .... ég er allavega búin að henda út á svalir húsgögnum sem eru þar á sumrin og men.. hvað það var gott að setjast þar niður áðan og hvíla sig eftir vænt þrifakast á hillum og skápum sem hafa beðið birtunnar.... áður en þrifið skyldi.  Ekki er nú samt neitt afspyrnuhlýtt úti, nema í skjóli.  Snúrunar mínar eru að verða nothæfar, það er að segja hægt að hengja upp þvottinn án þess að vaða í lappirnar við verkið.  Ekki veit ég hvar Smárinn minn bleytir sínar tær, hann er búinn að koma blautur í fætur til ömmu á hverjum degi síðan gamla skilaði sér heim.  Hér á hann þurra sokka og séu þeir ekki komnir úr þvotti, veit hann vel af sokkunum frá langömmu á Þingeyri sem enn sér öllum sínum afkomendum fyrir ullarsokkum og vettlingum.  Mér er ekki grunlaust um að einu vettlingar sem Sigtryggur fáist til að nota, séu fingravettlingar frá henni.

Framundan eru páskar og fermingar eru hafnar, ég sá fram á erfiðleika við að sinna þessu veislustandi, á skírdag eru þær þrjár .... allar á sama tíma. Ég var snögg að velja ... þótt feit sé, get ég ekki verið allstaðar.  Svo verða  Anna og Óli ásamt börnum hér um páska, gamangaman....

PS. Sé á teljaranum að það fer fækkandi þeim sem lesa blogg .... það eru allir á fésinu.


Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband