14.9.2009 | 17:46
Forréttindi á æskuárum .....
Ég var að lesa bloggið hans Ómars Ragnarssonar ( ekki læknis ) þar spjallar hann um þau forréttindi sín í bernsku að hafa verið sendur í sveit og hafa upplifað Laxárdalinn að hausti til í smalamennsku. Fyrir nokkrum árum síðan var ég fram á Kirkjuskarði laugardaginn um seinni göngur. Veður var gott, svo gott að það var óþarfi hreinn að vera í utanyfirflík. Eitthvað seinkaði smalamönnum framanað og mér hugkvæmdist að rölta upp á mel sunnan lækjar og vita hvort ég sæi til smalanna. Þegar ofar dró sá ég að þarna var einhver staddur með stóra myndavél að vopni. Sá reyndist vera sænskur blaðamaður sem ég gaf mig á tal við. Gat skýrt út fyrir honum að þarna væru æskuslóðir mínar, benti honum á hvar ég hafði átt heima og hvað ég hefði verið að gera fram í Kirkjuskarð svona tvisvar til þrisvar í viku. Miðað við hans uppvaxtarslóðir í blokkaríbúð sem hvergi sást út úr nema í steinvegg eða malbikað port, þá naut ég forréttinda í bernsku og það sagði hann mér. Þegar reksturinn var svo kominn út hjá Núpi var hann þar kominn ... að mynda gamla bæinn minn .... vel kátur.
Gísli fór suður í morgun og kemur aftur í kvöld ... með Sigtrygg Einar með sér. Hann fær að vera einn hér hjá ömmu og afa fram á helgi, skreppa til Kötu og Jonna ... og fara svo í réttir um helgina. Þá verða mamma hans og Óli komin norður með hin systkinin til að taka þátt í réttarfjörinu. Þau fá gistingu hér heima, afi og amma verða fram á Núpi með Smárann sinn í húsbílnum um helgina. Hann vill vera með afa og ömmu í þessum réttum ... ekki misst úr nema eitt skipti síðan hann flutti norður smásnáði.
Bloggvinir
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- Árný Sesselja
- Svanhildur Guðmundsdóttir
- Solla
- Gerða Kristjáns
- Guðrún Ösp
- Fjóla Æ.
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Fanný
- Linda Lea Bogadóttir
- Brynja skordal
- saumakarfan
- Mamma
- Kolbrún Jónsdóttir
- Gylfi Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
- Anna Margret Valgeirsdóttir
- Signý Björg Valgarðsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- aloevera
- Kristín Bjarnadóttir
- Kristján Atli Sævarsson
- Ragnheiður
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
Man hvað mér þótti athyglivert þegar gestkomandi á mínu æskuheimili dáðust að víðsýninu sem þeim var boðið upp á af hlaðinu, fram að því hafði mér þótt víðsýnið sjálfsagt og ekkert óeðlilegt að geta sé suður á Holtavörðuheiði eða Drangajökul, stundum þurfum við aðra til að benda okkur á hvað við höfum það í raun gott og höfum alist upp við mikið frelsi og víðáttu en ekki bara steinsteypu og malbik.
kveðja Anna
p.s. bið að heilsa Maju og Guðjóni þegar þú kíkir á þau næst
Anna Lilja (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 01:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.