21.4.2010 | 10:05
Síðasti......
Dagur vetrar og Jón Tryggvi litli bróðir minn á afmæli í dag ... 46 ára ef ég man rétt. Á morgun er það Ella Bogga, mín yndislega vinkona sem á afmæli og unginn minn hún Árný á föstudaginn. Innileg hamingjuósk til ykkar allra héðan úr húsi.
Það er ekki svo gott að hér sé sumarlegt um að litast utan dyra, það snjóaði látlaust í gær frekar blautum og óyndislegum snjó sem allstaðar er manni til ama og leiðinda. Kemst ekki á inniskónum yfir til Árnýjar, hvað þá út í bílskúr ... eins og óféti það þarfnast þó vopnaðrar heimsóknar. Ennþá eftir að þrifa eftir smiðinn Gumma, þarna sagaði hann flísar og fleira sem notað var við að gera upp baðherbergið á neðri hæðinni. En einhverntíman fer þetta hvíta óféti af planinu og þá verður hægt að henda þarna út, ryksuga... gera hreint.. skúra .... og henda einhverju af draslinu sem enginn vill nýta.
En það kemur samt sumar á morgun og ég vildi svo innilega að færi að létta til í öllu því sem angar mig og gerir mér erfiðan svefn og áhyggjur daga flesta. Verst að í kolli mínum þýðir ekki að beita ryksugu né blautri tusku ...en það hlýtur að birta.
Bloggvinir
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- Árný Sesselja
- Svanhildur Guðmundsdóttir
- Solla
- Gerða Kristjáns
- Guðrún Ösp
- Fjóla Æ.
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Fanný
- Linda Lea Bogadóttir
- Brynja skordal
- saumakarfan
- Mamma
- Kolbrún Jónsdóttir
- Gylfi Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
- Anna Margret Valgeirsdóttir
- Signý Björg Valgarðsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- aloevera
- Kristín Bjarnadóttir
- Kristján Atli Sævarsson
- Ragnheiður
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
Gleðilegt sumar Halla mín, það birtir öll él upp um síðir þetta er spurning um jákvæðni, þolinmæði ( og og kannski fá systur mína til að pína þig smá) Vona að þú og þínir eigi gott og gleðilegt sumar í vændum.
kv. Anna Lilja
Anna Lilja (IP-tala skráð) 22.4.2010 kl. 09:54
Elsku Halla...
einhver bankamörgæsin söng um árið: "í kolli mínum geymi ég gullið.." Það á eiginlega við um þig líka, í þínum kolli er fullt af gulli og gersemum. Það sem þú þarft að gera er að róta í þessu skríni og skrifa upp það sem þú sérð. Það veitir manni gleði að rifja upp góða hluti... OG það veitir okkur hinum ómælda ánægju að lesa skrifin þín !!
Mér þykir ofsa vænt um þig !!! Hafðu það eins gott og þú mögulega getur !!!! Knús til þín og þinna :)
Sif (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 10:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.