26.8.2008 | 20:20
Þetta er ekki nokkur frammistaða....
Ekki bloggað í marga daga og kemur margt til. Nú er ég farin að fá kvartanir og fyrirspurnir hvað sé í gangi svo það er ekki um annað að gera en hysja upp um sig.... og blogga.
Ég sagði að það kæmi svosem margt til, mest þó líklega að hafa þurft að berjast við slæmt þunglyndi meir og minna síðan í vor. Því fylgir oft vanlíðan sem ég óska ekki einu sinni mínum versta óvini (á enga svo ég viti) og alltof oft brýst vanlíðanin út í ísskápnum eða búðinni. Afleiðingin ..... síðan í febrúar hef ég þyngst um 17 kíló. SAUTJÁN andsk....... kíló. Og fötin mín, þau eru sko ekki kát, það jaðrar við að að ég sé fatalaus, ég ætlaði sko ALDREI aftur í þriggja stafa tölu.
Nú er ég byrjuð að reyna að rífa mig upp úr þessu fúafeni, en það er erfitt í meira lagi... nóg um það.
Við fórum suður um síðustu helgi, hjónin og heimsóttum Skaftholt, heimili fyrir fatlaða í fygld þeirra Óla og Önnu + barna, þarna er unnið mikið og gott starf með því fólki sem þarna býr. Líka heimsóttum við íbúana á Bergveginum + Lenu sem býr þar í nokkra daga meðan hún jafnar sig eftir viðgerð sem hún fór í. Helgin var góð þrátt fyrir rigningu sem helltist úr loftinu .... alla dagana.
Bloggvinir
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- Árný Sesselja
- Svanhildur Guðmundsdóttir
- Solla
- Gerða Kristjáns
- Guðrún Ösp
- Fjóla Æ.
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Fanný
- Linda Lea Bogadóttir
- Brynja skordal
- saumakarfan
- Mamma
- Kolbrún Jónsdóttir
- Gylfi Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
- Anna Margret Valgeirsdóttir
- Signý Björg Valgarðsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- aloevera
- Kristín Bjarnadóttir
- Kristján Atli Sævarsson
- Ragnheiður
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
Æj knús á þig hjartans Halla mín og svo hefurðu verið að draga mig upp, sjálf lasin.
Það segir mér margt um þig yndislega góða kona.
Ég er stolt af því að vera vinkona þín
Ragnheiður , 26.8.2008 kl. 20:43
Knús til þín mamma mín
Þú veist hvar ég á heima og símann hjá mér
Anna Gísladóttir, 27.8.2008 kl. 00:03
Hey mamma knús frá mér líka og þú veist líka mitt símanr... eða það held ég og veistu hvað þú þarft bara 20 skref hjá mér til að koma og banka :o))))))) EN mundu mamma mín mér þykir alveg óhemju vænt um þig :o))))
Árný Sesselja, 27.8.2008 kl. 00:18
Knús á þig frá mér. Mundu að ljósið er við enda ganganna.
Fjóla Æ., 27.8.2008 kl. 08:39
Systir góð. "Nefndu mig, þegar þér liggur lítið á", stóð í einhverju gömlu æfintýri. Þú ert alltaf fljótust til hjálpar öðrum. Reyndu að nota vini þína núna, ef þeir eru til einhvers gagns
Sigrún (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 21:01
Elsku Halla mín, always look on the bright side of life, af neðri hæðinni er sem betur fer bara leiðin upp :) svo mikið rétt sem mamma skrifar hér að ofan, ef núna er ekki tími til að nota vinina, þá hvernær ? allar mínar bestu hugsanir og straumar til þín.
Halla G (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 00:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.