. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Föstudagur til fjár......

Að vísu er þetta líka þrettándi dagur febrúarmánaðar og sagt er að föstudagur og talan 13 eigi afskaplega illa saman. Ég ætla að treysta því í dag að þetta sé hjátrú ... og óska einum af mínum ágætu frændum í föðurætt, til hamingju með sextugsafmælið sitt..... Bragi Kárason á Þverá er sextugur í dag.  Og ætlaði í bíltúr, frétti ég í gær.

Það er aðeins að hlýna hér norðan heiða, undanfarna daga hefur hitastigið verið að þvælast á milli 7 til 14 stiga á celsius.... í mínus vel að meina, þannig að ekki hefur verið mjög freistandi að vera mikið utandyra.  Svo er Kiddi bróðir að kvarta yfir skítakulda, fari hitastig niður fyrir 20 stig... í plús. Namibía hvað......

Í kolli mínum byltast hugmyndir þessa dagana, sumar stórar, aðrar smærri og sjálfsagt misgáfulegar, sumar rætast, aðrar ekki og þá er bara að sætta sig við að sumt verður aldrei nema draumur, en ég minnist þess enn hve gaman var í æsku að láta sig dreyma.  Sem betur fer kann ég enn að  gleðjast yfir því smáa ... láta mig dreyma ... og langa .... það veitir ekki af að finna björtu hliðina á tilverunni þessa dagana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Finna  !! bara hafa augun opin , mín kæra.

Sigrún (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 09:38

2 identicon

Góðan daginn vinkona góð :)   Gott að sjá að þú ert farin aftur að skrifa :(  kv. ebj

ebj (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 09:42

3 identicon

Daginn systir.

For i gongu med dottirin snemma i morgun. Hitastigid var rett yfir 20 en var ordid skaplegra thegar eg kom heim 26-27 gradur.

Ef ykkur er kalt tha er eg med 2 herbergja ibud sem eg nota ekki.

Afnot af henni er ykkur velkominn.

                                     Solskinskvedjur Kiddi.

Kristjan Jokulsson (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband