4.4.2009 | 17:34
Það er að koma vor ......
Bara verður, takk .... ég er allavega búin að henda út á svalir húsgögnum sem eru þar á sumrin og men.. hvað það var gott að setjast þar niður áðan og hvíla sig eftir vænt þrifakast á hillum og skápum sem hafa beðið birtunnar.... áður en þrifið skyldi. Ekki er nú samt neitt afspyrnuhlýtt úti, nema í skjóli. Snúrunar mínar eru að verða nothæfar, það er að segja hægt að hengja upp þvottinn án þess að vaða í lappirnar við verkið. Ekki veit ég hvar Smárinn minn bleytir sínar tær, hann er búinn að koma blautur í fætur til ömmu á hverjum degi síðan gamla skilaði sér heim. Hér á hann þurra sokka og séu þeir ekki komnir úr þvotti, veit hann vel af sokkunum frá langömmu á Þingeyri sem enn sér öllum sínum afkomendum fyrir ullarsokkum og vettlingum. Mér er ekki grunlaust um að einu vettlingar sem Sigtryggur fáist til að nota, séu fingravettlingar frá henni.
Framundan eru páskar og fermingar eru hafnar, ég sá fram á erfiðleika við að sinna þessu veislustandi, á skírdag eru þær þrjár .... allar á sama tíma. Ég var snögg að velja ... þótt feit sé, get ég ekki verið allstaðar. Svo verða Anna og Óli ásamt börnum hér um páska, gamangaman....
PS. Sé á teljaranum að það fer fækkandi þeim sem lesa blogg .... það eru allir á fésinu.
Bloggvinir
-
Anna Gísladóttir
-
Rannveig Lena Gísladóttir
-
Árný Sesselja
-
Svanhildur Guðmundsdóttir
-
Solla
-
Gerða Kristjáns
-
Guðrún Ösp
-
Fjóla Æ.
-
Mummi Guð
-
Evaa<3
-
Fanný
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Brynja skordal
-
saumakarfan
-
Mamma
-
Kolbrún Jónsdóttir
-
Gylfi Guðmundsson
-
Gísli Blöndal
-
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
-
Anna Margret Valgeirsdóttir
-
Signý Björg Valgarðsdóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
aloevera
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Kristján Atli Sævarsson
-
Ragnheiður
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
Ég kíki nú til þín hérna öðru hvoru, Halla mín
. Það er notalegt að fylgjast með hve natin þú ert að sinna öllum þínum ungum - og jafn notalegt að að sjá hve vel þeir kunna að meta það
. Ég er hins vegar alveg handónýt að „kommenta“ - svo þú getur reiknað með að ég eigi stundum hlut í tölunni á teljaranum hjá þér þótt ég kvitti ekki (nema afar sjaldan)
Hafið það sem best - kveðjur til Gísla líka
Ingunn Ásdís (IP-tala skráð) 4.4.2009 kl. 19:28
Alltaf lít ég hér við, enda ekki komin með "Facebook" en það hafa fækkað bloggfærslum hjá þeim sem ég kíki hjá allir farnir á Face-ið
kv. ebj
ebj (IP-tala skráð) 4.4.2009 kl. 22:05
Halla mín, ég kíki OFT, en kvitta sjaldan, þú ert svo oft "að heiman" að þetta er leiðin til að fylgjast með þér
Sigrún (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 09:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.