. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Það er ekki oft sem......

Ég verð orðlaus, en það gerðist í gærkvöldi.  Ég setti mér fyrir löngu að blogga ekki nema almennt um hrellingar okkar Íslendinga í fjármálum, það eru nógu margir sem það gera en nú ætla ég að brjóta þá reglu mína.  Ástæðan .... kastljóssviðtalið við Svanberg Hjelm.  Ég veit ekki hvort fréttamaðurinn á börn en það á Svanberg og yngstu börnunum sínum bauð hann upp á að sitja undir útskýringum sínum á ástandinu á heimilinu.  Ég leyfi mér að draga í efa að þessi börn hafi haft þroska til að hlusta á angist föður síns út af ástandinu og hafi faðirinn ekki haft sinnu á að hlífa börnunum, hefði fréttamaðurinn átt að hafa rænu á því.

Nú ætla ég að setja punkt .... en það sýður á mér enn......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég sá ekki þetta viðtal. Þetta er kaldur raunveruleiki sem blasir við mörgum börnum í dag.

Ragnheiður , 5.5.2009 kl. 18:11

2 identicon

Ég sá þetta viðtal og er sammála þér. Börn hafa ekki þroska til að meta slík orð.

Sigrún (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 18:48

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sá því miður ekki þetta viðtal.  En ég er sammála því að það á að vernda börnin eins lengi og kostur er frá slæmum fréttum og ástandi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.5.2009 kl. 10:33

4 Smámynd: TARA

Farðu í kalda sturtu og eigðu góða helgi

TARA, 8.5.2009 kl. 13:36

5 identicon

tja... það hefur greinilega soðið á þér kæra frænka...  því í stað þess að setja punkt (eins og þú sagðir) settirðu 10 punkta... og svo hefur soðið uppúr því ekki hefur spurst til þín síðan...

en... ég er sammála með það að ástandið bitnar oft á þeim sem síst skyldi....

en.. mér þykir allavega voðalega vænt um þig !!! og bið að heilsa í bili :)

Sif (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 16:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband