2.7.2009 | 10:03
Annar dagur júlímánaðar .......
Er runnin upp og ég ekki bloggað síðan á pilsvargadaginn, afmælisdaginn hennar mömmu minnar fyrir vestan. Náði ekki að vera komin til hennar á afmælinu, það hefur þó stundum tekist. En vestur fórum við þrjú, Árný tók upp gamlan sið að fara í sumarfrí með mömmu og pabba og í þetta skiptið var hún ofurþæg ... enda enginn lítill bróðir til að jagast við í aftursætinu. Men hvað þau gátu rifist. Þau hafa líklega verið átta og níu ára þegar við fórum með þau í bústað austur við Lagarfljót á stórum bíl sem kallaður var Surtur, níu manna bíll minnir mig. Það var ekki nóg að hafa þau í sitt hvorri sætaröðinni, það varð að hafa bil á milli til að hægt væri að halda áfram för. Komin austur lagaðist þó samkomulagið en einhvern daginn tóku örþreyttir foreldrarnir sér hádegisblund og systkinin fóru til veiða í fljótinu. Þegar við losuðum svefn var auðheyrt að samkomulagið var á bak og burt, Árný var reið en auðheyrt var að Jökull skammaðist sín, hann var allavega lágvær... það var alveg nýtt í þeirra deilum. Við risum upp og litum út ...... og maður minn... kom ekki drengurinn röltandi heim með nýju veiðistöngina sína í hendinni og öngulinn tryggilega fastan í buxnarassi systur sinnar. Þeim fannst lítið til um móttökurnar foreldranna, hlæjandi bæði út að eyrum.
En nú var vopnið sem með var tekið .... myndavél og Jökull fjarri góðu gamni, staddur úti í Portúgal.
En dagarnir með mömmu og pabba urðu góðir, gist úti við Sveinseyri eina nótt, aðra inni í Dýrafjarðarbotni, hinar á planinu fyrir utan hjá þeim. Þar fann Gísli hellu eina mikla sem hann vildi endilega taka með sér heim. Ekki hægt að komast á húsbílnum nærri henni svo hann fékk pabba í lið með sér .... alltaf hægt að treysta því að gamli sé til í bras. Hellan góða sem ég kalla Dýrfirðing var sett á mitt gólfið í bílnum pökkuð vel inn svo ekki skemmdi hún og það var ekki laust við að pabbi væri hróðugur á svipinn þegar ég varð að viðurkenna að honum hefði tekist þetta prýðilega og hellan væri varla fyrir einu sinni.
Heim vorum við komin á föstudag um kaffleytið til að taka okkur til fyrir ættarmót í Húnaveri, vorum þar fram á sunnudag í góðu veðri. Síðan ætluðum við í Núp en miðstöð í bílnum neitaði að halda á okkur hita um kvöldið, þannig að við höfum sofið heima en verið framfrá eftir vinnu hjá Gísla. Framundan er svo barnahelgi og hænsnahússverk um helgina, erum að leysa af, Ragnar og Sandra eru á Kaldármelum með allavega tvö hross í keppni......
P.S. Það er búið að gróðursetja í reitinn okkar og setja niður húsið og nú er Gísli að hreinsa margra ára sinu uppúr blettinum... með garðsláttuvél. Ella Bogga og Sævar ...... kíkið á breytinguna frá í vor.....
Bloggvinir
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- Árný Sesselja
- Svanhildur Guðmundsdóttir
- Solla
- Gerða Kristjáns
- Guðrún Ösp
- Fjóla Æ.
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Fanný
- Linda Lea Bogadóttir
- Brynja skordal
- saumakarfan
- Mamma
- Kolbrún Jónsdóttir
- Gylfi Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
- Anna Margret Valgeirsdóttir
- Signý Björg Valgarðsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- aloevera
- Kristín Bjarnadóttir
- Kristján Atli Sævarsson
- Ragnheiður
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
Já Halla mín það er tilhlökkunarefni að renna við og skoða :) kv. ebj
ebj (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 11:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.