. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Síðustu dagar...

Hafa einkennst af læknaheimsókn sunnan heiða, góðri samveru með vinum í Fellahvarfinu og þreföldu barnaafmæli í gær í Keflavíkinni. Magnea, Aron og Birnir eiga öll afmæli í janúar, Oddný og Jökull héldu myndarlega upp á dagana þeirra með veislu í gær.  Reyndar fór svolítill tími frá  kökuáti í að fylgjast með handboltaleik .... sem allir vita auðvitað hvaða endir var á... magnað að fylgjast með þessu. 

Ég fór í sprautu á föstudeginum svo að það var kærkomið að hvílast hjá Ellu Boggu og Sævari, langt síðan við Ella höfum getað eytt saman stund eða degi og fátt sem truflaði.  Fór meir að segja með þeim til Maríu Sifjar og fjölskyldu á laugardeginum, Elín Ása nýbúin að eiga afmæli og fullt af ættingjum í heimsókn.

Kötu mágkonu heimsóttum við Gísli svo í gærmorgun, hún er komin heim til Sillu systur hans Jonna og safnar þar kröftum eftir aðgerð síðan á mánudaginn var. Tókst vel og þarf ekki neina eftirmeðferð og Kata mun hressari en við bjuggumst við ...... frábært.

Svo var það mamman mín á Skagaströnd í dag, kom til hennar um miðjan daginn og hún vissi jú að þetta var ég en vissi ekki mikið af sér.  Fór svo aftur áðan til að bjóða góða nótt, þá var hún betur vakandi og spurði hvenær ég hefði komið heim, mundi að ég hafði þurft til læknis.  Elsku mamma ... guð gefi henni góða nótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband