. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Blogga strax, vantar fréttir......

Var það eina sem stóð í skilaboðum frá Kidda, var að finna þetta í skilaboðum inni á fésinu.  Ég hef greinilega gleymt fyrirheitum um að reyna nú að standa mig sæmilega við bloggið........er ekki sagt að vegurinn til fja.... sé varðaður góðum fyrirheitum.

Ekki það að ég sé á leiðinni til fjandans, hreint ekki.  Það er svosem ekki margt að frétta annað en nú er fjölgað hérna niðri, ekki krakki samt, Kiddi minn heldur er sambýlismaður Árnýjar fluttur norður.  Kom norður í nótt, við höfðum áhyggjur nokkrar af honum á leiðinni sökum veðurs, hér var andstyggilegt veður nánast allan daginn í gær og fram á morgun, en náði ekki einu sinni vestur fyrir Gljúfurá.  Það var svo blint að keyra í morgun að Árný sneri við á leið í vinnuna og var þá komin að vegamótunum við  Skagastrandarveginn.  Nú er hinsvegar orði albjart.

Göslinn og Svanhildur litu inn í morgunkaffi, hún hafði verið ræst af bróður sínum til að hjálpa til við póstútburð, hún var frekar úfin yfir að hafa þurft að vakna fyrir hádegi.  Skapið skánaði við mömmukökur, túkalla og mjólk.  Nú eru það að bera út og Óskar er búinn að moka hér stéttar og svalirnar svo ég geti nú hleypt hundinum út til að pissa... án þess að vaða snjóinn í hné.  Svo þarf að fara í Mýra seinnipartinn og ljúka verkum í púdduhúsinu, Ragnar tínir á morgnana, Gísli og Árný hafa séð um restina með hjálp Svanhildar og Gösla ... eftir því hvort þeirra hefur haft tíma.  Nú sér fram úr þessu, Óskar mættur á svæðið og tekur við vinnu þarna.

Héðan er annars allt gott að frétta bróðir sæll ... skrifa aftur á morgun eftir að skötuát er afstaðið í hádeginu ........ er fáanleg skata þarna á útnára alheimsins ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ofsa ertu hugguleg við bróður þinn Halla mín :)   Kannski er það í lagi.. því ég sá á fésbókinni að einhver gráskeggjaður öldungur hefur yfirtekið síðuna hans Kidda.. hann sem venjulega er ekkert svo svakalegur á að líta...

En að öðrum málum. Ég vil senda mínar bestu jólaóskir til ykkar allra þarna á Húnabrautinni, afkomenda ykkar og viðhengja!!  Hafið það dásamlegt og njótið jólanna!

Knús :)  Sif

Sif (IP-tala skráð) 23.12.2010 kl. 08:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband