14.12.2011 | 10:17
Árið 2011....
Er brátt á enda og ég get ekki sagt að ég sakni þess nein býsn. Það hefur svo margt færst til og breyst í kringum mig og ég enn að sætta mig við breytingarnar. Stærsta breytingin er þó að Vala og Gummi fluttu suður á Selfoss. Gerðist nokkuð snögglega og flutningum fygldu hrellingar nokkrar hjá þeim sem ekki var séð fyrir endann á fyrr en nú nýlega. Árný og Óskar giftu sig 16 júlí í sumar fram í Undirfellskirkju og veislan var haldin í hlöðunni í Saurbæ. Góður dagur sólbjartur og fallegur. Við skiptum um húsbíl í sumar, yngri bíll og betri og sómir sér vel á blettinum okkar góða uppi á Núpi. Notuðum okkur vel að eiga svona grip, gistinætur í bílnum urðu yfir níutíu. Oftast uppi á Núpi, tvær ferðir vestur, útilega með börnum og vinum um verslunarmanna helgina, bara gaman. Helgi um hrossaréttir fram á Núpi, Anna og Óli komu norður með börnin, gistu hér heima en voru mest með okkur uppfrá. Kristján Atli kemur orðið reglulega í heimsókn til Árnýjar og Óskars nokkra daga í mánuði og unir sér vel, ekkert áreiti þegar hann er einn.
Ég eyddi nokkrum dögum núna snemma í desemberfyrir sunnan og naut gistivináttu og hjálpar hjá Valla og Öllu Rúnu, var með "litla" frænku með mér sem þurfti hjálp í nokkra daga. Uppgötvaði við þetta að ég mætti að ósekju rækta betur sambandið við bræður mína..... mann er víst endalaust að læra. Laugardaginn sem ég var í bænum fór ég með Önnunni minni á jólatónleika með Björgvin Halldórssyni og gestum hans. Að þeim öllum ólöstuðum naut ég þess mest að hlusta á snáðann hennar Dúu minnar, Svein Dúa Hjörleifsson. Unun að heyra hve vel hann hefur þroskað þennan hæfileika sinn ... að syngja eins og engill. Hver veit nema mamma hans hafi getað fyglst með honum.
Svanhildur mín sefur héna niðri, kom norður til afa og ömmu í gær ... yndislegt að hafa hana í nokkra daga.
Bloggvinir
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- Árný Sesselja
- Svanhildur Guðmundsdóttir
- Solla
- Gerða Kristjáns
- Guðrún Ösp
- Fjóla Æ.
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Fanný
- Linda Lea Bogadóttir
- Brynja skordal
- saumakarfan
- Mamma
- Kolbrún Jónsdóttir
- Gylfi Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
- Anna Margret Valgeirsdóttir
- Signý Björg Valgarðsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- aloevera
- Kristín Bjarnadóttir
- Kristján Atli Sævarsson
- Ragnheiður
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
Já, það má segja að þetta ár hafi verið "fullt af allskonar" ! Sumpart eiginlega með leiðnlegri árum en svo eru líka góðir hlutir að gerast :)
Hafðu það sem allra best um jólin elsku Halla, vonandi færðu sem mest að sjá af ungunum þínum öllum :) Ég hugsa mikið til ykkar :)
Sif (IP-tala skráð) 15.12.2011 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.