23.9.2007 | 15:56
Rok en ekki rigning.........
Mætir mér snemma morguns og talvan í fýlu og vildi ekkert fyrir mig gera til að byrja með, hvorki hleypa mér inn á netið eða leyfa mér að blogga. Lét hana því hugsa sig um á meðan ég fékk mér morgunhressingu og lauk við að lesa sunnudagsmoggann, mér tókst ekki að ljúka því í gærkvöldi. Eldsneytið á mér var þrotið fyrir kvöldmat, held að ég hafi verið háttuð fyrir klukkan níu. Gísli þorði ekki annað en fara "einusinni enn" upp í Mýra seint í gærkvöld, það spáði svo illa, þvottahússgluggin opinn fyrir kisu og best væri að athuga vel alla glugga og hurðir fyrir nóttina. Vonandi er allt á sínum stað þegar hann kemur uppeftir á eftir, reiður köttur sem kemst ekki út að pissa, hús og hænsnakofinn, já að ógleymdri geymslunni.
Ég ætla að vera hér heima í dag veit þó ekki hvort mér tekst að ýta áfram verkum síðustu tveggja daga. Það er að setja upp fleiri hillur úti í skúr, veggurinn reyndist vera hæfur til að setja þar upp hansahilluvegginn minn. Þá er komið að því að tæma fleiri kassa svo að verði fært um klósett og forstofu, þar eru slatti af kössum sem bíða eftir losun.
Mér verður ekki að ósk minni, Anton og Elísa mættu fyrir hádegi, mamma þeirra er á leiðinni til London með grunlausan eiginmanninn, allavega þangað til að hann kemst að því að pabbi hans er að ferja hann í veg fyrir konuna sem ætlar að koma honum á óvart, en ekki að ná í gamlan bíl sem var sagan sem pabbi hans plataði hann af stað með. Elísa var með hita í gær svo hún fer ekki út í dag allavega. Rétt áður en þau komu, duttu Svanhildur og Þorsteinn inn um dyrnar. Eftir viðgerð á buxunum hans Þorsteins (ónýtur rennilás) fóru þau aftur, með Anton með sér og ætluðu í fóbolta og svo að horfa á boltaleik í sjónvarpinu. Mér tókst reyndar að ginna þau hér heim í millitíðinni með nýelduðum grjónagraut. Nú sefur Elísa svefni hinna réttlátu í rúminu mínu, sagðist vera þreytt og það væri rok.....þetta með þreytuna kannast ég við að reyna að sofa af mér en rokið verður örugglega bara verra þegar hún vaknar.
Bloggvinir
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- Árný Sesselja
- Svanhildur Guðmundsdóttir
- Solla
- Gerða Kristjáns
- Guðrún Ösp
- Fjóla Æ.
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Fanný
- Linda Lea Bogadóttir
- Brynja skordal
- saumakarfan
- Mamma
- Kolbrún Jónsdóttir
- Gylfi Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
- Anna Margret Valgeirsdóttir
- Signý Björg Valgarðsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- aloevera
- Kristín Bjarnadóttir
- Kristján Atli Sævarsson
- Ragnheiður
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
Ef ég hefði vitað af rennilásnum biluðum þá hefði hann ekki farið út í þessum buxum ! Takk fyrir viðgerðina :)
Gerða Kristjáns, 23.9.2007 kl. 20:52
Þú veist að mér þykir gaman að þessu, hann hefði líka alveg mátt koma með þær í poka, það gerir Svanhildur..........
Frænka.... (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 22:08
Takk elsku mamma fyrir hjalpina. Thad var ofsalega gaman ad geta haldid thessu leyndu alveg thangad til ad vid vorum komin af stad ur Borgarnesi. Hann aetladi samt ekkert strax i eitthvar ferdalag med mer... aetladi ad skoda bil med pabba sinum fyrst :)
Knusadu ormana mina alveg spes fra mer... sakna theirra mikid!
Rannveig Lena Gísladóttir, 24.9.2007 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.