. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Áminning...........

Hún kom hér inn í gærkvöldi, takk Gerðan mín, að ýta við frænku.  En mér er mislagið að blogga og stundum þarf ég að láta það ógert í nokkra daga, svona meðan mitt stóra skap er að róast og jafna sig eftir að einhver/eitthvað hefur æst það upp úr skónum.

En þar sem frá var horfið, Kiddi skilaði sér til baka á mánudeginum og bauð okkur Gísla í mat heima hjá Gerðu, hann hafði orðið sér úti um lambalæri af nýslátruðu og þær frænkur, Gerða og Árný elduðu, það voru til nýuppteknar kartöflur og ég átti rababarasultu, að vísu árgerð 2006 en hún smakkaðist vel. Hann fór svo suður seinnipart nætur og var mættur í vinnu á réttum tíma.  Næst heyrði ég í honum um miðjan dag á miðvikudag, þá var hann að bíða eftir flugi á Gatwik. Hann var kátur með þetta stutta stopp og men..... hvað honum tókst að koma systur sinni og mági á óvart.

Það er komið haust og lægðir og hæðir þeytast yfir mann með roki og rigningu, jafnvel slyddu, en stundum birtir, núna í augnablikinu er sólskin,en ..... bara tveggja stiga hiti. Ætla að vera dugleg í dag og set vonandi inn aðra færslu í kvöld.  Þangað til .... eigið góðan dag.

P.S.   Ekki halda að bróðir minn elskulegur hafi reytt skap mitt upp úr skóm sínum, það gerðu draugar sem áttu að fara amk sex fet niður fyrir meir en ári..........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sæl halla min .hef ekki sed tig i morg ar og langadi ad kvitta fyrir mig . .en hef alltaf frett af ter i gegnum mommu ,og ekkert sidan hun do.ef tu vilt frettir af mer lestu fyrstu færslurnar a minu bloggi www.123.is/ellanorge og leyninumer a myndasidu 2909 kvedja elinborg

elinborg traustadottir (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 12:34

2 Smámynd: Ragnheiður

Ragnheiður , 22.9.2007 kl. 12:43

3 Smámynd: Fjóla Æ.

Mikið er ég nú alltaf glöð með það að við séum vinkonur og að við verðum það alltaf. Þú og þín fjölskylda ert partur af lífi mínu og hefur alltaf verið og verður það lengi áfram.

Ég man nú ekki hvort að þú hafir verið ein af þeim ómögulegu gjöfurum hér í denn enda skiptir það ekki máli. Erfi það ekkert við neinn. Þetta var tíðarandi þess tíma.

Eigðu góðan dag og brostu, það er svo gott.

Fjóla Æ., 22.9.2007 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband