. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Mánudagur..................

Og ekki til mæðu, nei takk.  Kiddi er enn staddur hér einhverstaðar fyrir norðan mig ennþá en er væntanlegur í kvöld.  Hér til okkar Gísla hefur hann ekki komið áður.

Ég fór upp í Mýra snemma í morgun, þar leiddi haltur blindan, báðar vorum við þreyttar efir helgina. En það þurfti að keyra út rúmlega hálfu tonni af eggjum, Árný dreif sig í það þegar við vorum búnar að ljúka verðmerkingu og pappírsgerð en ég rölti upp í hús og náði að verðmerkja upp úr 16 körfum áður en hún kom aftur,  svo þurfti ég að hypja mig um ellefu leytið, þá voru bara 12 eftir.

En það var gærdagurinn.  Hann var ansi kaldur í morgunsárið , vel hvítt á jörðu og því napurt frekar að hlaupa á nærbuxunum og bol inn í bakdyrnar, lét nig nú samt hafa það.  Enda hélt Árný að nú væri mamma alveg búin að tapa glórunni.  Svo slæmt var það nú ekki, fötin mín voru bara flest inni í bæ.  Morgun verkum dreift á alla sem hægt var, nema Kidda, hann var ekki að sofa frameftir morgni frekar en fyrri daginn.  Svo var það að mæta vel og snemma í réttina, Smárinn minn og Sigtryggur komu með mér.  Anna var komin áður en rekið var inn svo hún fór með okkur Sigtryggi í innrekstur, sem gekk vel, það er að segja úr næturhólfinu. Hross sem komu nokkru seinna ofan Norðurárdal, vildu alls ekki hliðið sem þeim var ætlað og var þras að koma þeim inn, tókst þó án óhappa.  Réttarstörfum var nánast lokið fyrir þrjú og þá fengum við leyfi til að hypja okkur heim.  Það var nefnilega eftir að koma fyrir helluborðinu fína sem Óli hafði keypt fyrir okkur og fleira þurfti að gera. Kiddi fór uppúr hádeginu norður á Krók til Oddnýjar, yngri dótturinnar sem býr hér heima og ætlaði svo enn lengra norður, á Grenivík til Diddu og koma í garðinn til Ómars, heimsækja Sigrúnu gömlu, mömmu Ómars og svo að skoða skip á Akureyri. Kemur til baka í kvöld.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gerða Kristjáns

Jæja og nú er föstudagurinn að klárast.....á ekkert að blogga meir ??

Gerða Kristjáns, 21.9.2007 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband