. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Messa hins helga Þorláks...........

Er runnin upp, kyrrt og fallegt veður úti,  og ég byrjuð á morgunverkum þessa dags, þ.e að skipta á rúminu mínu.  Það er skýr minning frá í æsku að skipta um rúmföt, jólabaðið í gamla stóra blikkbalanum hennar mömmu ( á meðan ég komst ofan í hann) og ný náttföt, og hvað það var gott að hjúfra sig undir sænginni um kvöldið, hrein og fín......... og jólin væru á morgun. Hlusta á jólakveðjurnar á gömlu gufunni meðan svefninn læddist að manni og finna lyktina af jólahangikjötinu sem verið var að sjóða fram í eldhúsi.  Svei mér þá ef ég finn ekki vott af lykt....

Gísli er farinn upp í Efrimýra til að ljúka pökkun sem hann byrjaði á í gærkvöldi, svo kemur hann í skötuna í hádeginu á Árbakkann, þar hittist stór hópur með okkur. Valan mín og hennar fólk, Lena með sitt, Gerða og snáðarnir, Árný, Majan mín og fylgifiskur og svo við gömlu hjúin.  Við erum rík, ég taldi í gær hve margir yrðu í grautnum í hádeginu á aðfangadag, 20 ef allir mæta sem eru á svæðinu og ekki að vinna.  Bara Annan mín sem er svo langt í burtu með sitt fólk að hún verður að elda sinn graut sjálf heima hjá sér.......

Annars er íbúðin niðri tóm og nóg til af mat ef þið viljið drífa ykkur norður........ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Halla , held að ansi margir eigi svona minningar, skifta á rúmunum og taka til á þorláksmessu. Hlusta á jólakveðjurnar og skreyta , yndislegar minningar sem ylja manni .

Ég óska þér og þínum gleðileg jól og farsældar á komandi ári, sjáumst að öllum líkindum á nýju ári í stóðréttum ef ekki fyrr

Hildur Þöll (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 10:51

2 Smámynd: .

Takk Hildur mín, gaman að sjá til þín og gleðileg jól.......

., 23.12.2007 kl. 15:33

3 Smámynd: Gerða Kristjáns

Takk svo mikið fyrir mig og mína, og hlakka ógurlega til að fá graut á morgun.............þá geta jólin komið

Gerða Kristjáns, 23.12.2007 kl. 19:32

4 Smámynd: Anna Gísladóttir

Mikið svakalega vildi ég að þetta væri hægt .........

Anna Gísladóttir, 23.12.2007 kl. 22:29

5 Smámynd: Fjóla Æ.

Gleðileg jól til þín og þinna.

Fjóla Æ., 24.12.2007 kl. 09:13

6 Smámynd: Gerða Kristjáns

Gerða Kristjáns, 24.12.2007 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband