. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Bjartsýni dauðans.....hjááálp

Að halda að ég myndi hvar í ósköpunum ég hefði séð texta á netinu, sem ég finn svo ekki núna. Þetta eru nokkrar vísur um litla stúlku sem er að gefa fuglum brauðmola og heldur að þeir séu að biðja um meira þegar þeir fylgjast með henni, eina línan sem ég man er... mamma ég held að þá langi í meira. Ef einhver hefur séð þetta, mig minnir að ég hafi lesið þetta á bloggi einhvers......viltu láta mig vita......

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný

Í Morgunblaðinu 4.febrúar

Þið litlu, kæru vinir, sem leitið

hjálpar manna,

þá landið okkar góða er vafið

klakaböndum

og lífið fuglinn smáa leikur

hörðum höndum,

hvern lítinn mola þakkið úr

höndum gjafaranna.

Í kringum litla stúlku, sem korni

á skaflinn stráði,

var kominn stærðarhópur með

þakkarglampa í augum,

alla tíð síflögrandi með ótta í

fínum taugum,

unz með dirfsku og snarræði

loksins fengnum náði.

Hún gælir blítt við hópinn og

hlustar næmu eyra,

um hjartað streymir gleði og

augun geislum skarta.

Hún hleypur inn til mömmu,

þá hljómar röddin bjarta:

Þeir horfðu allir til mín, –

þá langar víst í meira.

Leifur Eiríksson 101 árs

Guðný , 8.2.2008 kl. 16:28

2 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Segiði svo að það virki ekki að blogga um það þegar að manni vantar aðstoð við eitthvað.... þetta tók greinilega innan við hálftíma

Rannveig Lena Gísladóttir, 8.2.2008 kl. 16:55

3 Smámynd: Mummi Guð

Hvernig komst maður eiginlega af áður en netið kom?

Mummi Guð, 9.2.2008 kl. 09:32

4 Smámynd: .

Mummi minn, guð sá til þess að það sem við þekkjum ekki.... vantar okkur ekki heldur......

., 9.2.2008 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband