. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Barnadagur með meiru....

Ég afrekaði að vera komin á fætur áður en Anna Guðbjörg og Smári komu í dyrnar, mamma þeirra var að fara á leikæfingu.  Smárinn var að vísu með smáhita, nógu mikinn til að hann missti af árshátíð í gærkvöldi og í morgun hélt hann sig mest undir teppinu hans langafa inn í stofusófa .... þangað til að Alexander birtist undir hádegið með fótboltamyndamöppuna sína undir hendinni, þá kom einhver aukaorka í snáðann.... allavega meðan hann dáðist að möppunni... og öfundaði bróður sinn.  Matarlyst hafði hann litla í hádeginu, öfugt við bróður sinn sem át grjónagraut þangað til amma sagði stopp, það fer að koma grautur út um eyrun á þér. Já en ég er átvagl á svona graut, amma, svaraði snáðinn.  Hann er ekki átvagl... bara Jökulsson.  Eftir hádegið birtist Lena með sín börn og súkkulaðitertu, mér tókst að baka lummur úr grautarafganginum svo það varð hið fjörugasta borðhald hér í kaffitímanum, þá voru reyndar Smárinn og systir hans farin heim.

Undir kvöldmat var ég orðin ein með Alexander sem dundaði sér við kubba og fleira þangað til að kom að spaugstofunni, sem við hlógum óspart að, afinn flúði fram í eldhús á vit Moggans, hann væri líklega skárri.  En það var gaman að spaugurunum sem áður en þegar kom fram í laugardagslögin var snáðinn orðinn þreyttur og háttaði, bylti sér nokkrar ferðir um rúmið inni í litla herbergi og kom svo til mín.... amma ...  kannski er betra að sofna í afaholu.  Þar steinsefur hann núna, amma ætlar ekki að fara að sofa fyrr en að hún veit hvaða lag fer í Eurovision keppnina þetta árið......

P.S...... fréttirnar, við erum búin að selja Efrimýra..........loksins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gerða Kristjáns

Þú meinar væntanlega LaugardagslÖgin ?

Er þá búið að skrifa undir loksins ??  Til lukku með söluna

Gerða Kristjáns, 23.2.2008 kl. 22:04

2 Smámynd: .

Haaaaaa......

., 23.2.2008 kl. 22:40

3 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

takk fyrir spjallið og lummurnar 

Rannveig Lena Gísladóttir, 23.2.2008 kl. 22:44

4 identicon

Til hamingju með söluna og skemmtilegan laugardag :)  bestu kveðjur í Blönduóssveitina :)

Halla Guðmunds (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 00:05

5 Smámynd: Fjóla Æ.

Til hamingju með söluna.

Fjóla Æ., 24.2.2008 kl. 09:22

6 identicon

Til hamingju með söluna

Sesselja (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 18:27

7 identicon

Jæja nú er farginu létt af ykkur :) Til hamingju :)

kv. ebj

ebj (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 08:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband