. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Tíminn flýgur....

Já og það hratt.  Bara tvær vikur í London, sólarhringur eða svo þangað til við hjónin förum suður til veru í rúma viku... ekki smuga að svoddan sé hægt nema að Gísli sé að vinna, iðjulaus fæst hann ekki til að dvelja ótilneyddur svo lengi í borg óttans.  Ég er að dunda við að finna föt og tösku ..... semsé pakka, sem er ekki það skemmtilegasta sem ég geri. En verð í þetta skiptið.

Elísan var hjá ömmu eftir að skóla lauk í gær og fram yfir kvöldmat , mamma hennar enn fyrir sunnan með veikan Anton, en ég held að hún sé komin heim núna ... með drenginn..  Hún er ekki fyrirhafnarsöm sé hún ein, leikur sér í ömmudóti og dundar sér.

Ég er alltaf öðru hverju að undra mig á illu innræti mannskepnunnar, núna síðast við að heyra af óþokkanum sem áreitti litlar stelpur í sundlaug Reykjanessbæjar...í sömu andrá og fréttist af "kastljóss"afstyrminu lausum úr fangelsi.... loka svona eintök inni ævilangt... og þá meina ég það sem þeir eiga ólifað, ekkert minna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

skemmtu þér æðislega vel fyrir sunnann vinan (:

Og ennþá betur úti í london.

Hafrún Eva 

Hafrún Eva (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 00:09

2 Smámynd: Mummi Guð

Já. Það kemur mann oft á óvart hversu vondir mennirnir geta verið.

Mummi Guð, 28.2.2008 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband