. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Ekki dauð ..... bara lasin.....

Í stað þess að leggja af stað vestur á Þingeyri til pabba og mömmu, mátti ég snáfa í bólið mitt.  Var eitthvað ræfilslegri en ég vildi vera og orkulaus og þar sem ég ætlaði að taka blóðþrýstingsmælinn með..... gráupplagt að mæla sig.  Þar birtust tölur sem ég vildi alls ekki sjá.  Ég vorkenndi sjálfri mér smástund, tók svo símann og hringdi í Majuna mína.  Hvað á ég að gera með þessar tölur á mælinum,  var spurningin sem hún fékk og af sinni fádæma hreinskilni var svarið ... þú snáfar í rúmið og hringir svo í lækni.  Til að gera langa sögu stutta... ég hlýddi.  Og því er ég hér heima ennþá, pumpan mótmælir um leið og ég geri eitthvað meira en fara framúr og heimsækja gustafsberg og eldhúsið... til að borða.  Þetta er nú samt á niðurleið ... hægt.

Uppi á íþróttavelli standa yfir smábæjarleikar í fótbolta, þar eru þeir að keppa Aron og Smári Þór, Elísa og Anton og hafa staðið sig vel.  Jökull og Oddný eru hér með börnin, Jón bróðir á neðri hæðinni með sín tvö + samstarfskonu sína og hennar son, hér hefur aldrei verið neitt mál að hýsa fólk... gamall vani frá Núpi og góður.

Við sváfum nú samt í bílnum bæði í nótt og fyrrinótt og ég get sagt ykkur að það er fátt ef nokkuð sem tekur því fram að vakna í bílnum við fyrstu geisla sólar að morgni fram á Núpi og heyra ekkert nema fuglasöng og stöku kindajarm.

Hrafl úr vísum Einars frænda Guðlaugssonar flugu um kollinn í morgun, hér eru þær allar......

Sumarkvöldin seiða

sannra ævintýra

held ég þá til heiða

heim í ríki dýra.

Heyrist rámur rómur

refir eru að gagga

Svanir sælt og lómur

sér á tjörnum vagga.

 

Innst í urðarbakka

eirir minkur hljóður.

Sígur húm í slakka

sofnar lamb hjá móður.

Unir inn í lundi

önd hjá sínum maka

sé ég fram á sundi

silungana vaka.

 

Yfir Eiríksjökul

árdags-sunna flæðir.

Hún í gylltan hökul

hjúpar svartar hæðir.

Himinn hreinn og fagur

hljómar af fuglakvaki

enda er aftur dagur

inn af Hnúfabaki. 

 

Svona orti náttúrubarnið Einar frændi, hafi hann fyrir hjartans þakkir. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Elskuleg Halla mín, farðu vel með þig og vittu hvort læknirinn getur eitthvað gert í málum ...

Ragnheiður , 22.6.2008 kl. 21:35

2 identicon

heldurðu ekki að kvæðið hafi bara hjálpað til ? hvað er hollara en svona hugsun + það að sofna og vakna í húsbíl á slíkum stað.

Þeir, (staðirnir), eru margir í nágrenni við þig, ég veit um einn í Vatnsdalnum. Knús....

Sigrún (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband