22.4.2008 | 20:45
22 apríl í dag......
Og æskuvinkona mín hún Ella Bogga er sextug í dag. Hjartans óskir til þín, Ellan mín kær, með afmælisdaginn, ég hef vægan grun um að þér líði vel í dag, umvafin af dætrum og tengdadóttur sem og ömmustelpunum sem fengu að fara með til Danmerkur í tilefni dagsins.
En það er líka afmæli á morgun, Árný mín er þrítug, það munaði svo sáralitlu að Ella Bogga fengi hana í þrítugsafmælisgjöf. Þessum áfanga ætlar hún að fagna í sveitinni sinni ásamt gestum sem kunna að slæðast í kaffi, það fer hver að verða síðastur fyrir hana að bjóða til veislu þar ..... ætlar að flytja í foreldrahús fyrstu helgina í maí. Og ekki laust við að sé tilhlökkun hjá mömmu gömlu.....
Er að koma vor?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.4.2008 | 16:36
Mátti til........ var að finna þessa snilld.
Miðaldra kona stendur allsnakin við spegil í svefnherbergi sínu, karl hennar er skriðinn upp í og er að lesa. Almáttugur að sjá hvernig ég er orðin segir hún. Brjóstin komin niður á maga, rassinn langleiðina í gólfið og appelsínuhúð úti um allt og líka keppir. Magnús segðu eitthvað til að gleðja mig. Hann leggur frá sér blaðið ........Ja þú hefur allavega góða sjón.
Ég veit ekki hvað ég hefði gert við Gísla, hefði þetta verið ég........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.4.2008 | 11:05
Föstudagsmorgunn......
Og fyrstu fréttir dagsins voru að eldsvoði hafði orðið um borð í skipi sem Kristján bróðir er á og núna er statt í Hafnarfirði við bryggju þar. Sem betur fer sluppu þessir þrír menn frá borði óslasaðir. Annars horfir dagur nokkuð vel, ég er hálfnuð við að þrífa planið hér fyrir utan húsið og men hvað það er hræðilega mikill skítur þar eftir veturinn. Það er enn smásnjóleifar í garðinum en um helgina ætti ég að geta þrifið beð og tínt upp óþverrann sem fýkur í runnana og situr þar fastur.. Mér er alveg óskiljanlegt hvað er ríkt í fólki að henda frá sér umbúðum utan af mat, bjórdósum, flöskum þar sem það er statt utan dyra í það og það skiptið... að ég tali nú ekki um andsk.... sígarettustubbana og flugeldaruslið sem er um allan bæ. Fallega stéttin fyrir utan nýuppgerða Saumkaupsverslun staðarins skartar sígarettustubbum í þúsundatali í rifum á milli steinanna sem hún er gerð úr. Í fyrra sumar tíndi ég upp stubba og dósir í kring um húsið hér við hliðina sem hýsir hárgreiðslustofu, Búnaðarsamband A-Hún, Vís umboðið, Sjálfstæðishúsið að ógleymdu Húnabókhaldi. Þetta gerði ég reglulega með aðstoð barnabarnanna minna en það var með ólíkindum hvað var fljótt að hætta að sjást að eitthvað hefði verið gert þarna til þrifa. Arg og hóst......
P.S ég gleymdi að útskýra fyrir þér Gerða mín hvað væri að ske á laugardaginn, það er sýning uppi í Hnitbjörgum sem ég ætla að " frumsýna " eldhúsgardínurnar mínar útsaumuðu..... fyrst að búálfarnir voru svo elskulegir að skila þeim í tæka tíð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.4.2008 | 17:31
Bloggleti og pirr........
Svona í fljótu bragði ástæðan fyrir stopulli komu hér inn. Veit svosem ekki alveg hvað það er sem fer svona í mínar fínustu þessa dagana, ja nema þá að ég sé komin með ofnæmi fyrir sjálfri mér. Anton Einar er búinn að eyða sínum frítíma í dag hjá ömmu, varð mikið fegin þegar hann uppgötvaði að afi hans og mamma höfðu ekki klárað mjólkurgrautinn sem ég eldaði í hádeginu, hann fær ekki margt betra hjá ömmu en grjónagraut með rúsínum. Elísan birtist svo þegar skóladagheimilið var búið, mamma hennar var í prófi og sú stutta var fljót hingað þegar enginn var heima hjá henni.
Er langt komin með að setja upp útsaumuðu eldhúsgardínurnar mínar ... ætla að monta mig aðeins af þeim á laugardaginn.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.4.2008 | 11:05
Fjandinn....... afsakið orðbragðið......
Ég vakna með fuglunum þessa dagana, er ekki enn búin að leggja frá mér að vaka á vitlausustu tímum þegar sauðburður fer að nálgast. Til að vekja ekki hjásvæfil minn elskulegan, hypjaði ég mig framúr um fimmleytið. Heimsótti gustafsberg... og viktina mína. Það hefði ég betur geymt fram eftir morgni, talan sem ófétið sýndi mér var mér ekki að skapi. Var efst í huga að fá mér göngutúr og henda viktinni í Blöndu. En ég léttist víst lítið við að hafa viktina syndandi ánni þannig að hún er enn inni á baðgólfi. Eitthvað sofnaði ég samt undir morgun, var samt á undan Gísla á fætur og það er í hæsta máta óvenjulegt. Morguninn hefur svo farið í heimilisverk.
Eftir hádegið er svo gesta von í Efrimýra, hjónin sem ætla að flytja þangað í júlí. Ætla að elda kvöldmat þar og borða með þeim og Árnýju. Og verð þá vonandi orðin í skárra skapi, get víst engu kennt um hækkandi tölu á viktinni nema eigin græðgi ......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.4.2008 | 08:26
Laugardagsmorgunn.........
Komin framúr bólinu, en ætla upp í aftur, ætla semsagt að vera góð við sjálfa mig í dag. Lesa siðfræðiritgerð yfir fyrir eina dótturina og gleðst yfir því að sjá öll börnin mín sýna öldruðum virðingu og hjálpsemi, þótt það sé bara eitt þeirra sem kaus að feta í fótspor mömmu sinnar og vinna við umönnum aldraðra. Einhverntíman í fyrndinni vann ég einhverja mánuði í fiski, en síðan tók við umönnum barna og gamalmenna, þar var minn staður. Fyrirmyndin var Lena móðuramma mín, hún tók inn á heimili sitt aldraða foreldra og tengdaforeldra, húsmennskuhjón sem vantaði athvarf og svo tvö gamalmenni sem voru bæði komin í kör, rúmföst.... ef einhver þekkir ekki orðið. Þannig byrjaði hún búskap sinn og hjúskap, ekki voru öll gamalmennin orðin óverkfær með öllu þannig að innabæjar þurfti hún oft ekki annað að gera en fylgjast með og nægar barnfóstrur hafði hún. Þessi amma mín tók á móti börnum þarna í sveitinni þegar ekki náðist í ljósuna yfir úfinn Dýrafjörðinn, þótt ekki hefði hún lært til þeirra verka, bjó um sár og skeinur og gerði vel, það er ekki mikið né stórt ör eftir saumaskap á skurði í hársverði sonar hennar. Hárið hvarf snemma af kolli hans en amma hafði unnið verk sitt vel, svo ekki voru ummerkin áberandi eftir að hafa fengið öngul í ennið ofarlega og fengið við það langan skurð aftur á höfuð.
Farin upp í aftur, með bók. Gísli er sloppin út í vinnuna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.4.2008 | 22:13
Föstudagur og .......
Útför Einars Guðlaugssonar fór fram í dag, undir styrkri hendi séra Hjálmars Jónssonar dómkirkjuprests, synir Einars og Immu og einn sonarsonur sáu um mestallan tónlistarflutning, einnig söng karlakór sem Einar var einu sinni í. Þetta var mögnuð tilfinning að hlusta á þá bræðurna spila.... enda tónlist þeirra ær og kýr. Tvívegis var ég næstum því farin að klappa, en .... náði að hemja mig og mikið var ég fegin þegar ég heyrði fleiri tala um að það hefði verið erfitt að hemja lófana. Ég var þá ekki ein um þetta.
Gísli skilaði sér heim í kvöldfréttabyrjun og fann þá konu sína afvelta við sjónvarpið. Væri búin að ljúka blogginu plús að góna á imbann, ef ekki hefðu birst hér góðir gestir, hjónin sem seldu okkur húsið. Gaman að sjá þau hress og spræk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2008 | 20:15
Vandræðavika.......
Sem er senn á enda, ég er grasekkja síðan í gær að Gísli fór í skrattaskýrslu...... ég meina skattaskýslugerð vestur á Strandir og kemur ekki heim fyrr en á morgun. Lena skilaði sér hinsvegar til baka úr sinni vinnuferð í dag. Er hálforkulaus þessa dagana, líklega gengið eitthvað á varatankinum undanfarið. Verst þó hvað ég sef illa ... vakna jafnþreytt og ég sofna.
Núna er vetrarstarfið uppi í Hnitbjörgum að síga á seinni hlutann, sýning annan laugardag og þá væri ekki verra að vera búin með eldhúsgardínurnar mínar, það er að segja setja þær upp. Já og svínin hennar Sollu minnar, það þarf líka að setja þau í "stíu" ..... setja þau upp í gardínu fyrir hennar eldhús, þar hanga jólagardínur þangað til ég kem þessu af........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2008 | 19:13
Ég sakna Hugins líka .........
Já, Fjólan mín og Mummi, það eru margir sem sakna hans, snáðans ykkar litla sem kenndi manni svo margt um lífið. Ég hef hlustað á misgóðar ræður presta við útför, en þessi prestur snerti svo margt. Ég er ekki hissa þótt þið hafið valið hann til að kveðja snáðann. Munið alltaf setninguna sem hann endaði ræðuna á..... hjálpumst að. Takist ykkur það, ungarnir mínir, þá verðið þið réttu megin í prósentutölunni 80/20. Enn og aftur... hjartans þökk fyrir að hafa lofað okkur svo mörgum að fylgjast með baráttunni fyrir drenginn ykkar... og betra lífi.
Ég var með Birni litla um helgina og átti með honum góðar stundir, vorum farin að sofa þegar afinn kom til okkar seint á laugardagskvöldið, enda var skrýtinn svipur snáðans þegar það var afi en ekki mamma eða amma sem kom til hans nývaknaður í gærmorgun. Eftir að taka af honum næturbleyju og klæða í þurr föt, brölti sá stutti þvers og kruss yfir okkur afa sinn þangað til að hann kom okkur fram úr og vildi þá mat .... strax. En ekki hvað, drengurinn er Jökulsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2008 | 14:43
Enn í Reykjavíkinni...........
Ójá, stóra systa, bróðir þinn og hjásvæfill minn má þola einveru enn og aftur. Mér til málsbóta er að hann lagði fast að mér að vera yfir nótt en ekki að keyra til baka á miðvikudagskvöldið, nú og ég þurfti að vera komin aftur suður á föstudag, til hvers að æða norður fyrir einn sólarhring. Ergo ... ég er hér enn. Er reyndar að hugsa um að koma ekki hér aftur fyrr en í byrjun júlí, mér er farið að líða eins og jójó.
Árný mín er á leiðinni í helgarfrí, ekki veit ég hvort nýbakaðir eigendur leysa hana af, hún var reyndar búin að semja við Sollu um hjálp. Hún á að vera með aukaföt og inniskóna mína í farteskinu, einna mest hef ég saknað skónna minna. Var ekki búin undir að stoppa svona lengi.
Mér finns annars skrýtið mjög að keyra hérna í bænum núna, mann athugar vel áður en farið er úr húsi hvar bílstjórar eru að mótmæla háu bensín og olíuverði. Þverfótar varla fyrir lögreglunni, nú eru þeir sko vel sýnilegir á götunum. Eitt indælið stöðvaði mig í gær, ökuskírteinið var til allra lukku með í för en manngarmurinn gerði nú samt athugasemd við mig ....... hvort væri eitthvað að, ég liti illa út. Ég svaraði honum stuttlega.... hvort hann kæmi ekki til með að bera þess merki að hafa sofið illa síðustu nætur og grátið af og til undanfarinn sólarhring? Hann spurði ekki frekar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggvinir
-
Anna Gísladóttir
-
Rannveig Lena Gísladóttir
-
Árný Sesselja
-
Svanhildur Guðmundsdóttir
-
Solla
-
Gerða Kristjáns
-
Guðrún Ösp
-
Fjóla Æ.
-
Mummi Guð
-
Evaa<3
-
Fanný
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Brynja skordal
-
saumakarfan
-
Mamma
-
Kolbrún Jónsdóttir
-
Gylfi Guðmundsson
-
Gísli Blöndal
-
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
-
Anna Margret Valgeirsdóttir
-
Signý Björg Valgarðsdóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
aloevera
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Kristján Atli Sævarsson
-
Ragnheiður
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 113442
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007