. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Komin heim..........

Og þar beið mín ryk á gólfum, óumbúið hjónarúmið, risavaxin húsfluga, stafli af mogga ólesnum, já og svo allt annað.  Rykið er enn á gófinu, athugist að ég kom seint heim, ekki búin að búa um, enda ætla ég að skipta á rúminu og klukkan er ekki nema níu að morgni, en ég er búin að lesa moggann, svona nokkurnvegin.  Fátt ef nokkuð þar sem gladdi mann, frekar hitt, því að þar sá ég að gömul vinkona hafði kvatt núna í vikunni, Kristín frá Bergsstöðum í Svartárdal.  Hún vann með mér í mörg haust í sláturhúsinu hérna og varð mér um margt minnisstæð.  Seintekin en trölltrygg, fámál en orðheppin og hafði skýrar skoðanir, lét þær kannski ekki upp hvar sem var en í gorklefanum fuku oft margar perlurnar hjá henni.  Það verður seint sem ég gleymi viðbrögðum hennar þegar ég grét sárt yfir fréttum sem Gísli kom með í vinnuna til mín og blessunin hún Stína mat það meira að hugga mig en að bregðast við vömbunum sem skiluðu sér með örstuttu millibili niður rör við hlið hennar.  Þegar sú/sá sem mataði rörið heyrði loksins í henni, skildist vel að Stínu hafði runnið í skap... allnokkuð og það skilaði sér á kjarnyrtri íslensku upp rörið. Blessunin hún Stína, friður fylgi henni yfir landamærin......þegar ég birtist væri hún vís með að segja...loksins, og glotta eins og henni einni var lagið.

Hér rignir enn eins og syndafallið sé rétt ókomið, það verður ekki þurrkað úti, þvotturinn minn þennan daginn..... pása.

Búin að taka  vænan skurk í tiltekt og þrifum, eldhúsið mitt er orðið eins og það á að vera... nema gólfið, það fær að bíða eftir Maju, búin að skipta á rúminu, með aðstoð Gísla, enda sefur hann þar líka, taka upp úr töskunni, setja í fyrstu þvottavél dagsins ..... er ég ekki bara dugleg?

P.S. Moppaði líka gólfin og náði flugufj...... eða frænku hennar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Júbb, þú ert dugleg.  En ert samt að gleyma að blogga um gjafabréfið...

Rannveig Lena Gísladóttir, 14.10.2007 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband