22.10.2007 | 09:05
Skemmtileg helgi ...........
Að baki og ný vika runnin upp. Jón bróðir og Lóa, já og auðvitað börnin þeirra komu hér um miðjan dag á laugardag og gistu. Hér höfðu þau ekki komið áður til okkar og það var ekki laust við að Karenu og Helga þætti skrýtið að við værum ekki lengur í goggusveitinni, eins og þau sögðu stundum á meðan þau voru lítil. Líklega á þó Karen heiðurinn af þessum titli, því hún kallaði Gísla lengi vel afa gogg á meðan hún átti erfitt með að segja nafnið hans, já og jafnvel lengur. En þau skruppu nú í sveitina í heimsókn, þar voru fyrir fimm börn um helgina hjá frænku sinni, Svanhildur og Smári Þór + Anna Guðbjörg, svo voru tvíburarnir þeirra Kára og Evu líka í sveitinni. Eitthvað kíkti Gerða líka með sína syni þannig að bút úr laugardeginum hafa þau verið tíu talsins. Ekki nýtt að margt sé af börnum þar .... og uni vel.
Það fer að styttast í Tenerife ferðina og svo er Vala að skipuleggja stelpu ferð til London í mars ..... og vorkennir mömmu sinni ekkki hætishót að það eigi að fara tveim vikum áður en að hefst handavinnusýning í Olympia Hall. Ekki það að mig vanti eitthvað, það er bara svo óstjórnlega gaman að vera þarna á sýningu.
Ég er annars ekki í mínu skásta formi þessa dagana og kemur þar margt til. Haustið hefur aldrei farið vel með skap mitt, mér gemgur illa að halda mig á mottunni með mataræðið, matur er bara svo ægilega góður, meir að segja margra mánaða nammibindindi sprakk. Þetta varð til þess að nýlega grét ég yfir mynd sem ég var að horfa á af fárveikri anorexíustúlku fyrir fáeinum dögum. Ekki það að mig langaði til að vera svona horuð, en mér finnst oft almættið skipta kílóum illa á milli fólks. Ég hefði glöð gefið henni alllt sem hana vantaði upp á þyngdina, öllu verra er að það væri ekki nóg, hana skortir líka annað viðhorf til þess sem hún borðar, það sem hana hrjáir er hugurinn. Ég er kannski komin út á svell með með þessa þenkingu mína, hún er þó ekki illa meint, guð gefi að hún nái bata.
Nú er það dagurinn í dag, föndur eftir hádegið. hádegisverður í "möppudýrin" mín og svo sagan endalausa í skúrnum, en ...... hún er að styttast.
Bloggvinir
- Anna Gísladóttir
- Rannveig Lena Gísladóttir
- Árný Sesselja
- Svanhildur Guðmundsdóttir
- Solla
- Gerða Kristjáns
- Guðrún Ösp
- Fjóla Æ.
- Mummi Guð
- Evaa<3
- Fanný
- Linda Lea Bogadóttir
- Brynja skordal
- saumakarfan
- Mamma
- Kolbrún Jónsdóttir
- Gylfi Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
- Anna Margret Valgeirsdóttir
- Signý Björg Valgarðsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- aloevera
- Kristín Bjarnadóttir
- Kristján Atli Sævarsson
- Ragnheiður
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
Athugasemdir
sæl Halla mín :) mikið er langt síðan ég hef séð ykkur hjónin, í næstu norðurferð verð ég bara að kíkja til ykkar og sjá hvernig þið búið, ekki í sveitinni :) en þetta með að klikka á haustin og veturna virðist vera mjög algengt, hvort sem fólk er að hafa hemil á mataræði eða öðru og í því samhengi.. gott að það styttist í Tenerife og vonandi náið þið öll að slaka á þar og finna jafnvægið til að takast á við veturinn. hugmyndin um hversu gott væri ef við gætum öll skipt þessu milli okkar er góð og ég held að skaparinn hafi eitthvað klikkað þar :) hafðu það ávallt gott og gangi þér vel með skúrinn :)
Hallan Guðm. (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 13:01
Takk nafna mín, já það er orðið of langt síðan síðast hjá okkur, reynum að ráða bót þar á.......
., 22.10.2007 kl. 17:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.