. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Má til............

Ég hnaut um þetta á bloggi hjá vestfirskri "norn" sem ég kíki gjarnan á, hún er snilldarpenni og ágætur ljósmyndari líka, má til með að dreifa þesssu meira.....

Jólagjafalistinn hennar ömmu.

 

Elskulega fjölskylda, mér datt í hug fyrir þessi jól að senda ykkur smábréf um jólagjafir. Þar sem plássið er farið að minnka hjá mér, en þið öll svo elskuleg að færa mér gjafir fyrir hver jól.

  Ég biðst undan því að fá fleiri flókainniskó.  Ég á orðið lager sem endist mér út ævina.

  Ég vil líka segja ykkur að ég á nóg bæði af pottaleppum og svuntum.

  Ég á orðið 7 flónelsmorgun sloppa úr Rúmfatalagernum, og þarf ekki fleiri í bili.  Auk þess þykir mér eldrauður litur fallegri en þessi gammeldags pink kerlingarlitur.

  Myndir af börnum og barnabörnum eru allt í lagi, en best er að vera ekkert að setja þær í ramma, ég vil heldur setja þær inn í albúm, þar sem allir veggir eru orðnir þaktir af myndum, svo hvergi er auður blettur.

  Í Guðanna bænum ekki fleiri smástyttur, hvorki gler, keramik eða tré.  Ég þurfti að setja tvo stóra fulla kassa niður í kjallara eftir síðustu jól.  Og ég er orðin svo fótafúin.

  Bækur eru svo sem allt í lagi, en ég á orðið 10 biblíur, les þær reyndar aldrei, og allskonar ævisögur og heilsubækur.  Ef þið viljið gefa mér bækur, þá vil ég frekar Arnald Indriða, eða Agötu Christie.

  Og ég hlusta frekar á Led Zepplin og Nirvana en Hauk Mortens eða Karlakór Reykjavíkur.

  Sem betur fer hef ég losnað við öll fótanuddtækin með því að gefa þau á tombólur, nema þetta eina sem ég nota undir blóm á svölunum.

  Ég verð að segja eins og er, að ég hefði í staðinn fyrir þennan dýrindis lazerboystól sem þið tókuð ykkur saman og splæstuð á mig í fyrra, viljað hljómflutningsgræjur eða tölvu.  Sit afar sjaldan í svona stól, því það er erfitt að standa upp úr honum.  Og ég nota tölvu frekar, og þykir meira gaman að háværri rokktónlist.

  Svo ætla ég að benda ykkur á að þið verðið að koma jólagjöfunum ykkar snemma til mín þetta árið, því ég hef ákveðið að skella mér til Kanarí um jólin, við ætlum nokkur saman gamlingjar og djamma og djúsa.  Vonandi verðið þið stillt og góð.

 Sjáumst á næsta ári amma


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Brilliant.  Hver er vestfirska nornin??

Sigríður Sigurðardóttir, 22.10.2007 kl. 20:20

2 Smámynd: .

Hún heitir Ásthildur Cesil Þórðardóttir og býr á Ísafirði..... Nornarkenningin er frá henni sjálfri, mér finnst hún sko allt annað en norn, rauðhærð eins og ég en hefur mun blíðari svip......

., 23.10.2007 kl. 10:44

3 Smámynd: Árný Sesselja

Hurru mamma mín....

Ég skal sko alvreg gefa þér Led Zeppelin í jólagjöf :o)))

Annars er þetta hrein snilld....

Árný Sesselja, 24.10.2007 kl. 15:54

4 identicon

Ég skal sko alveg gefa þér ELDRAUÐA flík´í jólagjöf ekki vandamálið

Solla (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 18:42

5 identicon

Ekki Led Zeppelin takk, ég sagði bara að mér þætti þetta fyndið ekki að ég hefði samið þetta ykkur til hægðarauka.....líst samt vel á hugmynd Sollunnar

mamma......... (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband