. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Skál og syngja Skagfirðingar.........

Álftagerðisbræður tvítugir ..... skála og syngja, er tónlistin sem hljómar hér um allt hús í augnablikinu, Gísli ( minn )keypti möppuna sem þeir gáfu út núna fyrir jólin.  Það eru sko fleiri en frú Ingibjörg í Álftagerði sem eiga ektamaka með þessu annars ágæta nafni.  Mér finnst gaman að því sem ég er búin að heyra, sakna þess nú samt svolítið að heyra þá svona heflaða og kurteisa syngjandi drykkjuvísur og fleira gott sem gjarnan er sungið í" græna herberginu " í Bifröst og karlaklósettinu í Miðgarði.  Ekki fara nú samt að halda að ég komi oft á það klósett, menn eru bara svo tillitsamir að loka ekki á eftir sér, sé verið að syngja þar/og pissa.  Bunuhljóðið heyrist hvorteðer ekki fyrir söng.  Fyrir svo utan það að ég kem sjaldan orðið í Miðgarð, það er af sem áður var.  Ef mig ekki misminnir þá eru á þrettándanum næsta nákvæmlega 36 ár síðan ég stakk kínverja undir stól við hlið mér, stödd þar á balli, afleiðingin..... bæði mann og stóll hafnaði upp á borði ....  Og engum datt í hug að þessi kurteisa unga kona sem sat við hliðina á þessum annars ágæta manni ætti sökina á þessum hvelli enda var ég bara að kenna honum hvar ég vildi að hans hrammar hvíldu ... ergo ekki á minni lóð.

Úti er snjókoma eins og mann óskar sér um jólin, stór og yndisleg snjókorn sem falla beint niður á jörðina, öll tré eru skreytt þessari fallegu fönn, þurfa í raun ekki fleira skraut. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

.. skemmta sér og gera hitt..   eða var það eitthvað annað sem þeir gerðu ??  eða þá.. hvað er þetta hitt þarna í Skagafirðinum ???     ég er á norðurleiðinni á morgun (í dag)  og það verður yndislegt að sjá sveitina hvíta og fallega, verst að helv..  sunnan skítaveðrið virðist ætla að elta mig, ef spár rætast, sem þær vonandi gera sem minnst af ;)    í þessari heimsókn langar mig mikið til að ná að líta aðeins inn til ykkar Gísla, þeas ef þið verðið heima :)   tékka á ykkur  :)

Halla Guðmunds (IP-tala skráð) 29.12.2007 kl. 00:47

2 Smámynd: .

Vertu velkomin nafna mín, við erum heima.........

., 29.12.2007 kl. 09:16

3 identicon

Halla mín, það er búið að breyta báðum þessum húsum okkar í Skagafirðinum, svo enginn söngur er lengur í "Græna salnum" né á karlaklósettinu í Miðgarði, það er af sem áður var. Hafðu það annars gott í hvíldinni fyrir sunnan,

áramótakveðja,

Helga Haralds.

Helga Haralds. (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 22:01

4 Smámynd: .

Halló Helga mín, þarna sérðu hve skelfilega langt er síðan ég kom í Bifröst... en síðast þegar ég kom í Miðgarð var enn sungið hástöfum á fja..... klósettinu.

., 30.12.2007 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigandinn

.
.

Amma, mamma, frænka, fyrrverandi, á og síðast en ekki síst eiginkona, með ólæknandi útsaumsáhuga 

halla@efrimyrar.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband