16.12.2009 | 11:58
Leiftur liðinna daga......
Ellan mín kær. Það var notalegt að sjá til þín hérna á undan..... vitandi hve sterkar rætur við eigum þarna báðar. Ég bjó um mig í gamla rúminu mínu í herberginu innaf hjá þeim mömmu og pabba, þar beið gamla rúmið mitt, trérúm með göflum sem Signý á Balaskarði hafði gefið fram í Núp þegar fjölgaði þar í heimili sumarið 1957. Í því var firnaþykk og stór undirsæng fyllt með fiðri og hve yndislegt það var að hreiðra um sig í holunni sem myndaðist við að leggjast útaf og vefja svo utan um sig sænginni svo hvergi kæmist að kuldi, það var ekki alltaf hlýtt þarna. Vala mín var í burðarrúmi fyrstu vikurnar sínar, ég átti ekki rúm handa henni en einhvers staðar fundu afinn og amman lítið rimlarúm sem hún var komin í seint um haustið. Það var svo bara flutt á milli herbergja þegar ég var heima og sett fast upp við rúmið mitt, þá var svo gott að rétta hendina og hlúa að henni og oft hélt hún lítilli hendi um einn putta hjá mér. Yndislegt.
Þetta fyrsta sumar hennar Völu kom Helga Sigurjóns norður með Þorvald sinn, þá líklega fimm ára gamlan. Þau tóku miklu ástfósti við stelpuna og oft spurði snáðinn hvort mamma sín mætti ekki eiga hana. Hann var búinn að bíða eitthvað eftir því að eignast systkini en það gekk ekki sem skyldi. Því fannst honum sjálfsagt að mamma hans fengi þessa stelpu, þá myndi hún fá pabba. En ég var nísk og vildi ekki gefa honum litla systur. Helga var hinsvegar oft með hana og ég held að þakklætið hafi ekki flotið út úr hjá mömmu þegar Helga bauðst til að passa fyrir mig svo ég kæmist á réttarball í Víðihlíð um haustið. Þangað fór ég og sá þar í fyrsta skipti elskulegan eiginmann minn til margra ára. Hann var þar að skemmta sér, öskufullur með skólasystur mína úr kvennaskóla í fanginu og hafði ekki minnsta áhuga á að sleppa henni, hvað þá að sitja með mig líka.
Heim komin af þessu ágæta balli voru allir í fastasvefni... og ég þurfti að stikla yfir nokkra næturgesti til að komast í bólið mitt ... það voru göngur að morgni og til allrar hamingju hafði mamma engan sett í rúmið mitt. Valan svaf vært við hlið Helgu.......
P.S. Það hafði haft góð áhrif á Helgu að stússast svona mikið með Völuna, 15 júlí árið eftir eignaðist hún Bjarkann sinn.......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.12.2009 | 14:12
Hvít jól.........
Sá á forsíðu mbl áðan að veðurfræðingur spáir hvítum jólum norðan og vestanlands. Mér þykir þetta hið besta mál, alltaf er hátíðlegra á jólum sé hvít jörð þó svo að manni þyki ekki verra að ekki sé svo mikill snjór að mann komist ekki ferða sinna um jólin.
Fyrstu jólin hennar Völu var ég ein á báti og flutt aftur heim í foreldrahús með ungann minn. Var byrjuð að vinna niður á sjúkrahúsi og Valan mín í öruggu skjóli afa og ömmu uppi á Núpi. Ég var svo heppin að vera ekki á vakt á aðfangadagskvöld og gat því notið jóla á nýjan hátt, Vala orðin fimm mánaða og athygli hennar orðin auðsæ á margan hátt. Hún þurfti ekki að beita röddinni lengi á afa sinn þegar hann kom inn úr útiverkum eða úr fjósi, til þess að hann kæmi og tæki hana upp ... og með sér fram í eldhús til að fá sér kaffisopa og skipti þá engu hvort búið var að klæða hana eða ekki. En áfram með jólaminninguna mína. Pabbi og mamma gáfu henni stól til að sitja í sem jólagjöf, það er til mynd af henni í stólnum sínum (sem hún á enn ) baslandi við að nota sem snuð ranann á uppblásnum fíl. Mér eru þessi jól ógleymanleg, það er fátt sem jafnast á við undrunina og gleðina í augum barnsins síns við jólaljósin marglitu og skrautið sem prýddi gamla bæinn minn á jólum, allt þetta hafði ég alist upp við og deildi því þarna með eigin barni... í fyrsta sinn.
Næstu jól héldum við þarna líka en þá var Gísli kominn til sögunnar svo hann upplifði jól á annan hátt en hann var vanur þau jólin. Vala var löngu orðin mjög hænd að honum og ég minnist en undrunarsvips á pabba þegar sú stutta valdi á milli þeirra við eldhúsborðið ... og valdi Gísla. Það rumdi í pabba...... þetta kvenfólk, aldrei hægt að treysta því. Ég minnist líka svipsins á pabba þessi jól þegar ég opnaði jólagjöfina frá Gísla. Uppúr pakkanum kom matreiðslubók kennd við Helgu Sigurðardóttur, þykk og mikil matarbiblía sem ég hafði lengi óskað mér. Þú ætlar að vera viss um góði að fá einhverntíman eitthvað ætt að eta .... var athugasemdin sem hann laumaði að tengdasyninum tilvonandi.
Ójá, Gísli minn hefur lengst af fengið bæði mikið og gott að borða, umfangið á honum lengst af okkar búskapar ber þess ljósan vott, að ég nú ekki nefni eigið ummál. En nú ligg ég undir grun um að vera farin að spara við hann mat, hann hefur minnkað töluvert en er bara sáttur við. Ég er samt næsta viss um að mamma sæi ástæðu til að halda vel að honum mat ef hún næði til hans daglega. Hún elur mann eins og aligrís þegar hún nær til........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2009 | 19:11
Annar en ég er......
Sat áðan og var að hlusta á Gunnar Þórðarson flytja þetta stórgóða lag sitt. Ég er hinsvegar aldeilis alveg ósammála honum, ég vil ekki vera önnur en ég er. Það væri að vísu ágætt að losna við sitt af hverju sem hrjáir mig þessa dagana, blóðþrýstingsvandræði, andstyggðarverki í biluðum liðum víðsvegar um skrokkinn ....... að ég nú ekki tali um skammdegissurtinn sem vill ekki halda sig utan höfuðs míns. Að öðru leyti vil ég bara vera svona eins og ég er, skapstór svolítið og á það til að vera kjaftfor ..... gæti trúað að það væru erfðir þar að verki. Nóg um það.
Það er sagt að sé maður þungt hugsi út af einhverju sérstöku rétt áður en svefn er festur, þá dreymi mann það sem verið var að hugsa um. Ég var á laugardagskvöldið að rifja upp atvik sem ég var búin hálfpartinn að gleyma. Fyrir mörgum árum síðan var ég stödd uppi á Núpi að sumarlagi, ein á ferð og í þungu skapi. Þar ríkti ró og friður og ég rölti þarna um gömlu þúfurnar mínar og hugsaði um liðna daga. Líklega hef ég dottað, allavega hrökk ég allt í einu upp við hófaslátt nokkurra hesta, reis upp og leit suður götuna og jú, þarna kom einhver ríðandi og með fjóra hesta. Þarna var kominn Frímann Hilmarsson. Sennilega fór hann aldrei svo um hlað á Núpi að ekki væri stansað þar þótt fólk væri horfið úr búsetu þar, hvað þá meðan búið var þarna. Hann var að koma framan Laxárdal, hafði þurft á einverunni að halda rétt eins og ég. Hann brá ekki vana að stansa og lofaði hestunum að kasta mæðinni og grípa niður á gamla húsahólnum. Eitthvað spjölluðum við saman áður en hann kvaddi og hélt áfram út dalinn og þar sem ég sá á bak honum niður götuna minntist ég þess hve hann sat vel hestana sína áður og gerði enn, þrátt fyrir hlykki og króka á lífsleið hans undanfarið. Þetta var að rölta um í kolli mér stuttu eftir að ég setti inn bloggið mitt þarna á laugardagskvöldið. Morguninn eftir vaknaði ég upp frá draumi.......margir ríðandi menn að fara yfir brúna við Skrapatungu og fremstir fóru þeir feðgar Frímann og Kristján og við hina hlið Frímanns var Sölvabakkabóndinn Jón Árni... sem allir muna betur sem Adda. Það var gustur á þeim og mikil gleði .... gæti hafa verið kaupstaðarlykt.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.12.2009 | 20:29
Horfinn yfir Gjallarbrú.......
Við fygldum Frímanni Hilmarssyni til grafar í dag. Krabbameinið hafði sigur þann 3 des síðastliðinn. Síðast sá ég hann í réttum á Kirkjuskarði í haust, þangað var hann mættur af veikum mætti, svona í kringum fimmtíu kíló, með vökvagjöf í æð og gat ekki farið út úr bílnum. Áratugum saman hafði hann komið þarna úr göngum... með tvo eða fleiri hesta til reiðar, alltaf glaður, stundum góðglaður. Ég vissi ekki fyrr en í dag að hann hefði getað sett saman vísur, hitt vissi ég að hann kunni ógrynni af þeim og hafði gaman af að fara með þær. Og hestana sína þótti honum afar vænt um, það duldist engum sem þekkti Frímann.
Það var auðséð í kirkjunni í dag að hann var vinmargur, kirkjan full og vel það og hinu megin hafa mætt honum sonur hans og fleiri, það hefur verið skeifnahljóð í lagi á Gjallarbrú, hver veit nema séu Tröllabotnar hinumegin, það hélt prestur alla vega í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2009 | 21:51
Úr grasinu.........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.11.2009 | 19:48
Afmæli......
Ójá, Kristján bróðir á afmæli í dag ...... 56 ára ef ég man rétt. Til hamingju með daginn Kiddi minn, vonandi hefur hann verið þér góður.
Ég er stödd í bænum, að passa ungana þeirra Önnu og Óla í kvöld, þau fóru á jólahlaðborð á hótel Örk, Gísli á að vera á leiðinni í bæinn og Anna Guðbjörg með honum. Snúllan sú erá leiðinni til pabba síns um helgina og fær far með afa báðar leiðir. Gísli er að fara á fund og námskeið á morgun og síðan er það árshátíð annað kvöld á hótel Sögu.........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2009 | 11:05
Hjálp....það er mánuður.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.10.2009 | 18:06
25 október .....
Þessi dagur er mikið uppáhald í fjölskyldu Gísla, foreldrar hans gengu í hjónaband þennan dag 1941. Réttu ári seinna fæddist Sigrún og hún er því að ná stórmerkum áfanga í lífinu í dag ... 67 ára. 1945 fæddist Katrín, Sæunn og Gísli voru svo skírð þennan dag. Þau notuðu svo þennan dag systkinin óspart, opinberuðu trúlofanir, létu skíra mörg barna sinna.... og öll giftu þau sig þennan dag, lengst er síðan Kata og Jonni giftu sig, þau eiga 45 ára afmæli sem löggilt hjón í dag. Ég held að afmæli dagsins innan fjölskyldunnar séu orðin vel á þriðja tug talsins.
Hér er ennþá mikið fjör barna og fullorðinna, Anna og Óli eru núna að nýta sér stóra baðið hans Gumma... eins og nafna mín segir og á þar við heita pottinn þeirra Völu og Gumma. Höllu Katrínu finnst óþarfi að Vala eigi þessa snilld með Gumma, hann er mikið uppáhald stelpunnar eins og reyndar fleiri barna í fjölskyldunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.10.2009 | 13:02
Haustmorgunn úti......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.10.2009 | 23:31
Ræðan sem ekki var flutt ......
Fyrir nokkru síðan fékk ég bréf í pósti sem innihélt boð í fertugsafmæli norður í Eyjafirði. Bréfið var nokkuð skondið og alveg í anda konunnar sem var að bjóða okkur hjónum í fertugsafmælið sitt. Til dæmis manni til upprifjunar var yfirskriftin ... fertug-fjörug-frumleg-frísk-frábær- fönguleg og neðst á blaðinu var... forvitin-fagnandi-frjó-foreldri-fullorðin frjálsleg. Eins og ég myndi gleyma einhverju af þessu?
Ég ætlaði sko að þiggja þetta boð en komst svo að því að sonurinn ætlaði að halda upp á sitt afmæli hinumegin á landinu þá varð ég að velja og valdi soninn.
En ég var byrjuð á ræðustúf handa Guðrúnu Ösp og er að hugsa um að setja línurnar hér inn.
Elsku Guðrún Ösp.
Fertug, fínleg, frumleg, frökk
frjósöm, fjörug, fyndin,
kátleg, kyndug, kröftug, klökk ?
kannski er svona myndin.
Þetta skrifaði ég á blað sama dag og ég fékk boðið þitt í hendurnar. Ég á margar myndir af þér í huganum frá því þú varst pínulítil. Og endalaust þakklát fyrir hve oft þú dvaldir hjá okkur Gísla sem barn og unglingur. Uppátækin þín voru ærin ... enn er geymt bréf sem þú skrifaðir Gísla þegar þú þorðir ekki að segja honum beint að þú hefðir brotið slatta af eggjum við að bera þau heim. Í umslagi og skrifað utan á það rétt og riktuglega, en í stað frímerkis hafði hún teiknað hanahaus. Einhverntíman komstu um páska og að sjálfsögðu með spariföt, þar með talið sparifatavesti föður þíns, sem að sjálfsögðu fannst ekki í Tungusíðunni þegar eigandi vestisins ætlaði að klæðast því þessa sömu páska. Kannski voru þetta líka páskarnir sem þú grófst páskaeggið hennar Völu niður á botn í hveitiíláti Efrimýraheimilisins ... sem vel að merkja tók fimmtíu kíló hveitis en var til allrar lukku ekki fullt þá dagana. Ég hef vægan grun um að þrátt fyrir að vera orðin eiginkona og þriggja barna mamma, eigir þú enn til prakkaraskap og hafir gaman af að hræra aðeins upp í tilverunni í kring um þig. Takk fyrir allt gamalt og gott og guð gefi þér alla daga góða, hér eftir sem hingað til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggvinir
-
Anna Gísladóttir
-
Rannveig Lena Gísladóttir
-
Árný Sesselja
-
Svanhildur Guðmundsdóttir
-
Solla
-
Gerða Kristjáns
-
Guðrún Ösp
-
Fjóla Æ.
-
Mummi Guð
-
Evaa<3
-
Fanný
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Brynja skordal
-
saumakarfan
-
Mamma
-
Kolbrún Jónsdóttir
-
Gylfi Guðmundsson
-
Gísli Blöndal
-
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
-
Anna Margret Valgeirsdóttir
-
Signý Björg Valgarðsdóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
aloevera
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Kristján Atli Sævarsson
-
Ragnheiður
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007