6.10.2008 | 09:01
?????????
Ég er svo kvíðin, hrædd og reið í bland að ég finn ekki fyrisögn á þessar hugrenningar mínar sem rata hér niður þennan morguninn. Fréttir síðustu helgar voru nógu slæmar til að halda manni á tauginni, hvað gerðist nú. og viti menn...... það gerist ekkert. Landsfaðirinn Geir H. Haarde segir að það sé nóg að bankarnir færi eitthvað af viðskiptum sínum heim og viðskiptamenn Glitnis geti verið fullvissir um að tapa ekki neinu.
Halló, hvar hefur þessi ágæti maður haldið sig undanfarið? Hvað með þá sem eru að sligast undan lánunum sínum, einstæðingana og öryrkjana sem varla hafa tórt á því sem þeir hafa handa á milli... og allt hækkar, matur, húsaleiga, bensín....
Hvað með alla þá tugi, hundruð manna sem hafa misst vinnu undanfarnar vikur og sjá ekki á sú staða breytist í bráð, á þetta fólk er ekki minnst. Við heyrum hagfræðingana tala um að nú verði fólk að spara og selja eignir, en hver á að kaupa, hvergi hægt að fá lán nema á okurvöxtum......
Ég er kvíðin vegna unganna minna, þau eru öll með eitthvað lán á herðunum, sum eru nýbúin að kaupa sér þak yfir höfuðið, önnur eru með bílalán og öll eru þau með fjölskyldu sem sjá þarf fyrir, ja nema Árný. Held nú samt að hennar áhyggjur séu ekki minni en annarra, vegna þeirra sem hún er tengd fjölskylduböndum og vina.
Blogga seinna í dag um gleðiefni helgarinnar, núna ætla ég í restina af morgunverkunum og vita hvort mér léttir ekki í skapi við það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008 | 09:57
Froða......
Var lýsingarorðið sem kom í hug minn......eftir að hlusta á forsætisráðherra í fréttum í gærkvöldi, úrdrátt úr stefnuræðu hans. Við erum að tala við rétta fólkið og gera réttu hlutina og þið verðið að bíða .... var það eina sem hann hafði til málanna að leggja. Eini maðurinn sem sagði eitthvað af viti þarna var Steingrímur J ....... loka inni alla þá sem að þessum erfiðleikum koma á einhvern hátt og hleypa þeim ekki út fyrr en er farið að rofa til. Punktur.
Sólskin úti og skuggi á sálinni, góð vinkona missti mann sinn vofveiflega núna í vikunni, hugur okkar netkellnanna er hjá henni núna.... hittingur í kvöld hjá Kristínu og kveikið nú á kerti fyrir hana, stelpur mínar, mér finnst sárt að geta ekki verið með ykkur nema í huganum.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.10.2008 | 18:13
Á hraðri leið til helv....?
Nei það er ekki ég sem er á hraðferð "niður", heldur bankakerfi Íslendinga. Mann fer orðið með faðirvorið sitt í hvert skipti sem kveikt er á fréttum eða flettir blaði, það þarf stærri heila en minn til að botna í þessu öllu saman.
Upflettiritið mamma hefur verið í beinu símasambandi við soninn síðasta klukkutímann, ástæðan er eldamennska hjá honum. Þetta var ekki hans uppáhaldsiðja meðan ég bar ábyrgð á honum en nú þarf kall oft að elda og þá er stundum hringt í mömmu.
Það er komin dagsetning á "grasið" hjá mér ... mæting á heilsustofnun 14 okt. Úps þetta eru bara tólf dagar og ég sem þarf að gera svo ótalmargt áður en ég fer .......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.9.2008 | 08:59
30 september......
Það var enginn kassi á baðherbergisgólfinu í morgun, enda á ég baðvikt .... og verð ekki 56 ára fyrr en um ellefuleytið ...... rúmir tveir tímar enn. Og á Hlíðarbrautinni gerist ekkert enn, ég hringdi í Maju rétt fyrir kvöldmat í gær og spurði hvort hún væri ekki byrjuð að taka utan af afmælisgjöfinni minni. Ónei ... ófæddi óþekktaranginn situr sem fastast..... ja situr, stendur á haus væri nær að segja. En allt um það, Majan mín, hvort sem er 30 sept eða 1 okt, þá vona ég þín vegna að krílið fari að skila sér í heiminn.
Gærdagurinn hefði mátt vera betri, það segi ég satt. Fæstar fréttir sem í mín eyru komu frá því í fyrrakvöld og gærdaginn allan voru mér að skapi, þó svo ein þeirra meiddi mann annarri frekar...... og þá er ég ekki að tala um andsk...... bankana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
20.9.2008 | 16:52
Guð sé lof að ég á baðvikt.....
Jónas var í vandræðum, hann gleymdi nefnilega brúðkaupsafmælinu og kona hans var bálreið þegar hann kom heim án gjafar.
Konan tók hann því í strangt tiltal.-Það er eins gott að á morgun þegar ég vakni verði gjöf í innkeyrslunni, gerð úr járni og gleri og komist í 100 á innan við 6 sekúndum!
Morgunin eftir hvarf hann snemma í vinnuna en þegar konan hans vaknaði sá hún kassa í innkeyrslunni.
Hann var ekki alveg eins stór og hún átti von á. Hún gekk út og opnaði kassann.
Á botninum var baðherbergisvikt
Ekkert hefur sést til Jónasar undanfarna daga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.9.2008 | 10:32
20 september......
Jæja Majan mín, nú er það annað hvort eða .... detta í tvennt í dag eða bíða til þann 30 sept. Ég var með úrillara móti í gærkvöldi og var skriðin undir sæng fyrir níu, en ...... framúr aftur þegar dóttlan kom upp með Lenu frænku sína með sér í spjall. Tilraun tvö til að sofna endaði við sjónvarpið um hálfeittleytið til að góna á sossum eins og einn glæpaþátt. Að honum loknum tókst mér að sofna ... með tilfinninguna um að nú væri eitthvað að fara í gang á Hlíðarbraut 9. En þar sem engar fréttir voru í morgun, þá er líklega kúlubúinn enn í letikasti og vill ekki út strax. Skil ekkert í þessu, það bíður her manns eftir að sjá krílið.
Er ein heima, kallinn og dóttlan farin upp í Mýra, púddurnar eiga að vera mættar um hádegið og þá er að moka þeim inn svíturnar sínar, ég ætla að passa Emblu á meðan. Hún kom hér upp til mín í gær og var snögg að finna ömmudótið, verst að mamman var að flýta sér. En þær eiga örugglega eftir að koma aftur......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2008 | 16:11
Afgangurinn af Ike.....
Er búinn að fara illa með sólarhringinn fyrir mér og mínum. Þrátt fyrir aðstoð við að sofna, varð svefninn slitróttur sökum hávaðaroks, sem skánaði þó aðeins við að loka glugganum sem er mér þó þvert um geð. Eitthvað angraði veðrið hjásvæfil minn þrátt fyrir gluggalokunina, alltént var hann á leiðinni á fætur vel fyrir sjö. Ég hinsvegar þráaðist við en var samt komin á ról fyrir átta. Árný svaf hinsvegar ærlega yfir sig, hafði ekki getað fest svefn fyrr en undir sex í morgun og vaknaði með andfælum rétt fyrir tíu. Og varð of sein í skítverkun á Efrimýrum, þar er hún að aðstoða nýja eigendur púdduhússins við að búa húsið undir nýjan fugl sem mætir á laugardag.
Ég ákvað í hádeginu að nú yrði því ekki frestað lengur að koma einhverju skikki á umgengnina í skúrnum mínum, þar var bara staflað inn í sumar þegar við tæmdum uppi á Mýrum. Ég finn ekkert sem mig vantar í þessari óreiðu og til að byrja með var erfitt að smeygja sér þarna inn án þess að ryðja einhverju um koll. Nú er ég hinsvegar komin upp í pásu... með kaffi í könnu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.9.2008 | 11:14
Úps......
Ekki bloggað í marga daga ... ussususs. Ljósanótt kom og fór, gaman að sjá hvað um var að vera, er samt viss um að ég missti af mörgu sem þarna var hægt að sjá. Mér tókst að detta á föstudagskvöldinu og það hefti mig töluvert. Ég skarta ennþá fallega litum vinstri fæti með bólgublettum hér og þar...... býsna skrautlegt. Við fukum svo heim á sunnudeginum, það var allhvasst þarna á suðvesturhorninu þann daginn.
Núna er réttahelgin fram undan, Sigtryggur Einar mættur á svæðið og datt í lukkupottinn í gær, fékk að fara með Maju og ömmu í hrossastúss upp í Balaskarð í gær og var slétt sama þótt hann kæmi rennblautur og drullugur heim. Dreif sig í þurr föt ... til þess að snúa við upp í Efrimýra í púdduslag... skítugur aftur. Og það var alsæll drengur sem sofnaði hreinn og nýbaðaður í passi afans hér niðri í gærkvöldi, Árný var í skólanum með Sollunni í gærkvöldi, duglegu stelpurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.9.2008 | 09:20
Klukk
Ég gaf mér tíma í þetta en aðferðin maður........ hún klikkaði, ég verð þá bara lengi....
Fjögur störf sem ég hef unnið um æfina....
Húsmóðurstörfin, barnapössun, aðhlynning á sjúkrahúsi og heimili, saumastofa.
Fjórar bíómyndir.......
Hef ekki farið á bíó síðan í fyrra lífi, held ég.
Fjórir staðir sem ég hef búið á.....úps þetta eru fimm
Skagaströnd, Núpur, Akureyri, Blönduós, Efrimýrar og Blönduós aftur....
Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi á......
Alla sakamálaþætti sem ég næ í ...... þetta lítur út eins og ég sé glæpon að upplagi......
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum...
Puerto Rico, Haawaii, Suðurafríka, London
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg
mbl, Húnahornið, Netkellur (uss Kristín ég veit vel að ég gleymi því stundum)
Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna.......
Tenerife(næsta mánuðinn minnst), Prag ,London,Ljósanótt í Reykjanesbæhefði þurft að vera komin þangað í gær, hef örugglega misst af einhverju með því að fara ekki fyrren í dag....
Fjórir bloggarar sem ég klukka.....
Kristín Magg, Sifin mín og Árný, já og það væri gaman að sjá til þín Göspin mín .... ekki bloggað í margar vikur...
Nú er það næst á dagskrá að koma út í húsbíl því sem nauðsynlegt er með að hafa svo mann teljist gjaldgengur á Ljósanótt.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2008 | 10:06
Áminning/kvörtun ....
Magga Skúla kvartaði við mig á mánudaginn í föndri, sagði að eldhúsgardínurnar mínar sneru öfugt. Ég kveikti ekki alveg í hvelli, en ..... auðvitað, hún labbar framhjá minnst einu sinni á dag og sér bara hvítu bakhliðina, útsaumurinn snýr inn. Ég lofaði henni að þegar ég þvægi þær næst skyldi snilldin snúa út að götu....... fyrir hana. Annars getur orðið bið á þessum gjörningi ég er enn þvottavélarlaus síðan um verslunarmannahelgi. Þökk sé þvottavélum þeirra Völu og Gerðu þá er ekki komnir kögglar og slæm lykt af fatnaði okkar íbúanna hér á Húnabraut 11.
Hér kom smiður í gær með skápinn minn góða, gekk frá eintakinu í glugganum og límdi vel, setti upp hillur fyrir mig á vegg niðri á snyrtingu og hausinn hans Gísla upp á vegg í forstofunni. Sko .... ekki hausinn AF honum heldur uppstoppaða hrútshausinn sem hann er búin að eiga í yfir tuttugu ár uppi á vegg, fyrst á Brekkubyggð 18 og svo á Efrimýrum.
Síðan kvaðst hann koma í fyrramálið og ljúka við að setja hurðir og hillur í skápinn góða. Ég reif mig því á fætur uppúr sjö en... mín klukka er orðin tíu og hann ekki kominn, þó hann hefði skriðið á fjórum fótum utan úr Stíganda með verkfærin á bakinu ætti hann að vera kominn, þetta er svo stutt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
-
Anna Gísladóttir
-
Rannveig Lena Gísladóttir
-
Árný Sesselja
-
Svanhildur Guðmundsdóttir
-
Solla
-
Gerða Kristjáns
-
Guðrún Ösp
-
Fjóla Æ.
-
Mummi Guð
-
Evaa<3
-
Fanný
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Brynja skordal
-
saumakarfan
-
Mamma
-
Kolbrún Jónsdóttir
-
Gylfi Guðmundsson
-
Gísli Blöndal
-
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir
-
Anna Margret Valgeirsdóttir
-
Signý Björg Valgarðsdóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
aloevera
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Kristján Atli Sævarsson
-
Ragnheiður
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
TARA
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2013
- September 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007